Sigurbjörg Þorsteinsdóttir (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbjörg Þorsteinsdóttir frá Eystri-Vesturhúsum, húsfreyja fæddist þar 6. febrúar 1953.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Ólafsson á Vesturhúsum, verkamaður, f. 24. júní 1896 í Dufþalsholti í Hvolhreppi, d. 13. apríl 1967, og kona hans Gíslný Jóhannsdóttir frá Efri-Vatnahjáleigu, húsfreyja, f. þar 3. júlí 1911, d. 14. janúar 1993 í Reykjavík.

Börn Gíslnýju og Þorsteins:
1. Jóhanna húsfreyja að Hilmisgötu 1, síðar iðnverkakona í Innri Njarðvík, f. 25. marz 1930, d. 21. nóvember 2000, gift Jóhannesi P. Sigmarssyni múrara og vélstjóra.
2. Tryggvi kennari í Arendal í Noregi, f. 13. maí 1931, kvæntur Inger Thorsteinsson, fædd Thorvaldsen
3. Ólafía verkakona í Reykjavík, f. 9. nóvember 1933, gift Guðna Þ. Ágústssyni rafeindavirkja. Hún ólst upp hjá föðurbróður sínum Magnúsi Ólafssyni í Hvolhreppi í Rangárvallasýslu.
4. Trausti vélvirki í Kópavogi, f. 14. febr. 1935, kvæntur Önnu Finnsdóttur skrifstofumanni.
5. Halla skólastarfsmaður á Akranesi, f. 7. maí 1936, gift Þórði Þórðarsyni netagerðarmanni.
6. Lilja iðnverkakona í Reykjavík, f. 28. sept. 1937, gift Inga S. Sigmarssyni verzlunarmanni, en hann er bróðir Jóhannesar manns Jóhönnu systur Lilju.
7. Reynir húsgagnabólstrari í Kópavogi, f. 8. nóvember 1938, kvæntur Grétu Jansen skrifstofumanni.
8. Sólveig verzlunarmaður í Reykjavík, f. 26. febrúar 1940, gift Inga B. Guðjónssyni húsasmið.
9. Birgir húsgagnasmiður í Reykjavík, f. 9. marz 1942, kvæntur Sigrúnu Halldórsdóttur kennara.
10. Guðrún húsfreyja í Seattle í Bandaríkjunum, f. 17. maí 1943, fyrr gift Magnúsi Sigurðssyni verkamanni, síðar Richard L. Campbell tölvuverkfræðingi.
11. Jónína iðnverkakona í Kópavegi, f. 23. september 1944, gift Guðjóni Þorbergssyni iðnverkamanni.
12. Smári iðnverkamaður í Reykjavík, f. 18. marz 1946, ókvæntur.
13. Svanur rafeindavirki í Kópavogi, f. 2. október 1947, kvæntur Svanhildi Svansdóttur læknaritara.
14. Sigurvin sjómaður í Eyjum, f. 5. janúar 1950, d. 10. júlí 1980, fórst með v.b. Skuld.
15. Vilborg bóndi á Sléttabóli á Skeiðum, f. 22. nóvember 1951, gift Jóhannesi Eggertssyni bónda.
16. Sigurbjörg húsfreyja, f. 6. febrúar 1953, gift Jóhannesi Ragnarssyni vélstjóra, innflytjanda.

Sigurbjörg var með foreldrum sínum, en faðir hennar lést, er hún var 14 ára.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1970.
Sigurbjörg vann afgreiðslustörf og í Vinnslustöðinni.
Þau Jóhannes giftu sig 1972, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Höfðabrekku við Faxastíg 15 við Gos 1973, í Reykjavík, á Þórshöfn, í Svíþjóð í 3 ár, á Selfossi, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og búa nú í Hveragerði.

I. Maður Sigurbjargar, (14. október 1972), er Jóhannes Ragnarsson vélstjóri, innflytjandi, f. 28. maí 1963.
Börn þeirra:
1. Tryggvi Jóhannesson pípulagningamaður, f. 11. október 1978 í Svíþjóð, býr á Selfossi. Kona hans Ágústa Björk Haarde.
2. Erna Jóhannesdóttir kennari, vinnur við upplýsingagjöf á Selfossi og er nemi á Bifröst, f. 8. desember 1983 á Selfossi. Maður hennar Elías Þráinsson.
3. Ragnar Jóhannesson verkamaður í Álverinu á Reyðarfirði, f. 10. mars 1988 á Selfossi.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.is.
  • Sigurbjörg.
  • Vélstjóra- og vélfræðingatal. Ritstjórar: Þorsteinn Jónsson og Franz Gíslason. Þjóðsaga 1996 og 1997.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.