Sigurbjörg Jónsdóttir (bókari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbjörg Jónsdóttir húsfreyja, bókari fæddist 1. mars 1961.
Foreldrar hennar voru Jón Berg Halldórsson skipstjóri, verkstjóri, f. 1. júlí 1935, og kona hans Helga Sigurgeirsdóttir húsfreyja, sjúkrahússstarfsmaður, f. 11. nóvember 1936.

Börn Helgu og Jóns Bergs:
1. Halldór Berg Jónsson iðnrekandi, f. 5. febrúar 1959 í Eyjum.
2. Sigurbjörg Jónsdóttir bókari, f. 1. marz 1961 í Eyjum.
3. Ólafur Þór Jónsson pípulagningameistari, f. 6. nóvember 1962 í Eyjum, d. 10. desember 2020 í Hafnarfirði.
Barn Helgu og Meyvants Meyvantssonar:
4. Guðmundur Meyvantsson togarasjómaður í Hafnarfirði, f. 23. október 1955 í Reykjavík.

Sigurbjörg var með foreldrum sínum í æsku, við Helgafellsbraut 25 og við Búastaðabraut 11, og flutti með þeim úr Eyjum við Gosið 1973.
Hún var bókari.
Þau Jóhannes Guðsteinn giftu sig, eignuðust þrjú börn.

I. Maður Sigurbjargar er Jóhannes Guðsteinn Helgason, f. 10. september 1957. Foreldrar hans Helgi Eggertsson, f. 14. júlí 1932, d. 18. janúar 1985, og Jóhanna Soffía Jóhannesdóttir, f. 18. maí 1930.
Börn þeirra:
1. Jón Berg Jóhannesson, f. 11. júní 1982.
2. Brynjar Berg Jóhannesson, f. 9. apríl 1986.
3. Helga Soffía Jóhannesdóttir, f. 21. október 1993.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.