Sigurður Sigurðsson (Jónshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Sigurðsson bóndi, verkamaður fæddist 22. febrúar 1858 á Hlíðarenda í Fljótshlíð og lést 6. apríl 1941 í Sigtúni.
Foreldrar hans voru Þórunn Eyjólfsdóttir frá Nikulásarhúsi, þá vinnukona á Hlíðarenda, f. 1822, og Sigurður Nikulásson vinnumaður ,,skilinn frá konu“.

Þórunn móðir Sigurðar og Una Guðmundsdóttir húsfreyja í London voru hálfsystur, sammæddar.

Sigurður var tökubarn á Hlíðarenda 1860, vinnumaður í Hallgeirsey í A-Landeyjum 1880.
Hann kom til Eyja frá Hallgeirsey í A-Landeyjum 1881, var vinnumaður á Gjábakka í lok ársins og 1882, í Godthaab 1883 og 1884, kominn að Jónshúsi 1885, vinnumaður.
Guðríður fluttist að Jónshúsi úr Mýrdal 1886. Þau eignuðust Þórunni 1889 í Jónshúsi, en hún var send í fóstur að London á því ári. Þau eignuðust Ólaf 1890 í Jónshúsi. Guðríður var vinnukona í Túni í lok ársins með Ólaf hjá sér, en Þórunn var í Landakoti og Sigurður vinnumaður í Jónshúsi.
Í lok árs 1891 var Sigurður vinnumaður hjá Ólöfu Lárusdóttur og Guðjóni Björnssyni á Kirkjubæ, en Guðríður var með Ólaf í Túni og Þórunn var komin í varanlegt fóstur í London.
Þau voru vinnufólk á Kirkjubæ 1892 með Ólaf hjá sér.
Hjónin fluttust frá Kirkjubæ með Ólaf 1895 og stefndu á Reyðarfjörð. Þau voru bændahjón í Sigurðarhúsi á Eskifirði 1901, í Kristjánshúsi þar 1910, misstu Ólaf á því ári, voru í Húsi Sigurðar og Árna þar 1920.
Þau fluttust til Eyja 1929, bjuggu í Vallartúni 1930, í Sigtúni 1940.
Sigurður lést 1941. Guðríður var að síðustu í Gvendarhúsi og lést þar 1943.

Kona Sigurðar, (16. maí 1898), var Guðríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 4. október 1860, d. 1. nóvember 1943.
Börn þeirra voru:
1. Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 14. janúar 1889, d. 22. nóvember 1948.
2. Ólafur Sigurðsson, f. 12. júlí 1890, d. 1910, jarðsettur 5. maí.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.