Sigurður Magnússon Skagfjörð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Magnússon Skagfjörð frá Kjartansstöðum í Glaumbæjarsókn í Skagafirði, bóndi, sjómaður fæddist 13. maí 1888 og lést 22. nóvember 1961.
Foreldrar hans voru Magnús Sigurðsson bóndi á Kjartansstöðum, f. 3. desember 1858, d. 6. október 1906, og Ingibjörg Guðrún Bjarnadóttir, bústýra, húsfreyja, f. 28. maí 1831 í Elívogum, Skagaf., d. 20. október 1945.

Sigurður var með foreldrum sínum, en faðir hans lést, er Sigurður var 18 ára. Hann var staddur á Daðastöðum í Sauðárkrókssókn 1910, „segir til börnum lítinn tíma.“
Sigurður var kvæntur bóndi í Holti í Kirkjuhvammssókn í Hún. 1920 með konu sinni Herdísi Sigurlaugu Bjarnadóttur. Þau skildu.
Þau Emilía giftu sig, eignuðust sex börn. Þau bjuggu á Gafli í Víðidal í nokkur ár, bjuggu síðast á Geirastöðum í Þingi, V.-Hún.
Þau fluttu til Eyja um 1952.
Sigurður lést 1961 og Emilía 1994.

I. Kona Sigurðar, (skildu), var Herdís Sigurlaug Bjarnadóttir frá Vestra-Vatnshorni í Víðidalstungusókn, húsfreyja, f. 31. mars 1889, d. 10. mars 1975. Foreldrar hennar voru Bjarni Björnsson bóndi á Vestra-Vatnshorni, í Ytra-Tungukoti og á Eyvindarstöðum í Hún., f. 1851, d. 11. ágúst 1897, og Ingibjörg Þórdís Skarphéðinsdóttir, f. 30. október 1848, d. 6. júlí 1892.

II. Kona Sigurðar var Emilía Sigfúsdóttir húsfreyja, f. 26. nóvember 1898, d. 8. september 1994.
Börn þeirra:
1. Ingvar Sigurðsson, f. 31. desember 1925. Kona hans Ingibjörg Jónsdóttir.
2. Sverrir Sigurðsson, f. 21. janúar 1928. Kona hans Erla Hallgrímsdóttir.
3. Magnús Sigurðsson, f. 25. mars 1930. Kona hans Anna Jóhannsdóttir.
4. Elísabet Sigurðardóttir verkakona, húsfreyja, f. 13. maí 1933, d. 14. júlí 2013. Barnsfaðir Sigurður Hallvarðsson rafvirkjameistari, f. 9. maí 1937, d. 5. nóvember 2006. Maður hennar Ásmundur Pálsson meindýraeyðir, f. 20. ágúst 1943.
5. Karl Bergdal, f. 12. mars 1935. Fyrri kona hans Ragnheiður Guðnadóttir, látin. Kona hans Elín Ingólfsdóttir.
6. Lovísa Sigurðardóttir, f. 2. nóvember 1942. Maður hennar Guðgeir Matthíasson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.