Sigurður Ingimundarson (Túnsbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Ingimundarson frá Sæborg á Stokkseyri, kaupmaður á Stokkseyri, síðar veggfóðrari í Rvk fæddist 27. ágúst 1891 og lést 9. júlí 1944.
Foreldrar hans voru Ingimundur Guðmundsson trésmiður á Stokkseyri, f. 6. janúar 1852, d. 1. október 1936, og kona hans Ingunn Einarsdóttir húsfreyja, f. 18. desember 1860, d. 10. júlí 1944.

Sigurður var á Túnsbergi í Eyjum með Önnu konu sinni 1913. Þau fluttu til Stokkseyrar þar sem Sigurður var kaupmaður á Sunnuhvoli, síðar veggfóðrari í Rvk.
Þau Anna giftu sig, eignuðust fimm börn.
Sigurður lést 1944 og Anna 1979.

I. Kona Sigurðar var Anna Helgadóttir frá Vestra-Stokkseyrarseli, húsfreyja, f. 9. júní 1892, d. 12. nóvember 1979.
Börn þeirra:
1. Haraldur Sigurðsson kaupmaður, aðalféhirðir, f. 12. október 1913, d. 7. janúar 2000.
2. Unnur Sigurðardóttir húsfreyja í Rvk, f. 1. maí 1915, d. 26. maí 2004.
3. Georg Sigurðsson, f. 19. október 1919, d. 24. desember 1994.
4. Jóhann Lárus Sigurðsson loftskeytamaður í Rvk, f. 20. febrúar 1924, d. 2. september 2009.
5. Esther Sigurðardóttir, Rvk, f. 19. júní 1926, d. 27. febrúar 1967.



Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Guðni Jónsson. Stokkseyringafélagið í Reykjavík 1952.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið. Minning Haraldar Sigurðssonar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.