Sigríður Guðlaugsdóttir (Kirkjubæjarbraut)
Sigríður Guðlaugsdóttir, húsfreyja, dagmóðir, fæddist 27. mars 1951.
Foreldrar hennar voru Guðlaugur Vigfússon (Daddi í Holti) sjómaður, útgerðarmaður, netamaður, f. 16. júlí 1916, d. 27. apríl 1989, og kona hans Jóhanna Kristín Kristjánsdóttir frá Flatey á Skjálfanda, húsfreyja, f. 3. nóvember 1921, d. 12. október 1996.
Börn Jóhönnu og Guðlaugs:
1. Kristján Vigfús Guðlaugsson, f. 15. desember 1943 í Holti. Kona hans Rósa Björg Sigurjónsdóttir.
2. Guðleif Guðlaugsdóttir, f. 28. október 1948 á Helgafellsbraut 1. Maður hennar Páll H. Guðmundsson.
3. Sigríður Guðlaugsdóttir, f. 27. mars 1951 að Kirkjubæjarbraut 1. Maður hennar Gústav Einarsson.
4. Kristján Guðlaugsson, f. 31. desember 1954 að Kirkjubæjarbraut 1. Kona hans Ásgerður Halldórsdóttir.
5. Guðrún Guðlaugsdóttir, f. 9. ágúst 1959 að Kirkjubæjarbraut 1. Maður hennar Helgi Gunnarsson.
Þau Gústav giftu sig, eignuðust fimm börn, en eitt þeirra var kjörbarn þeirra. Þau búa í Garðabæ.
I. Maður Sigríðar er Gústav Magnús Einarsson, rafeindavirki, f. 13. janúar 1951. Foreldrar hans Einar Leander Søderholm, af finnskum ættum, f. 17. nóvember 1916, d. 1. júlí 1960 og Helga Þuríður Daníelsdóttir, f. 22. nóvember 1917, d. 17. janúar 2013.
Börn þeirra:
1. Jóhanna Kristín Gústavsdóttir, f. 20. apríl 1972.
2. Einar Gústavsson, f. 15. septembere 1975.
3. Atli Björn Gústavsson, f. 26. janúar 1988.
4. Sigríður Ósk Gústavsdóttir, f. 8. júlí 1989, var kjörbarn Sigríðar og Gústavs. Hún er dóttir Guðrúnar systur Sigríðar.
5. Kolbrún Helga Gústavsdóttir, f. 29. nóvember 1993.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Sigríður.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.