Sigrún Einarsdóttir (saumakona)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigrún Einarsdóttir frá Brúnum í V.-Eyjafjallahreppi, lausakona, vinnukona, saumakona fæddist 3. mars 1885 og lést 13. febrúar 1981.
Foreldrar hennar voru Einar Pálsson bóndi, f. 14. september 1848, d. 7. nóvember 1904, og kona hans Guðrún Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 13. maí 1850, d. 7. júlí 1916.

Sigrún var með foreldrum sínum í æsku, á Fornu-Helgu Söndum 1901, á Brúnum 1910, en dvaldi á Lundi í Eyjum, var lausakona á Brúnum 1920, saumakona á Kirkjuvegi 26 1930 og 1940, vinnukona í Miðgarði við Vestmannabraut 13a 1945 og 1949, átti heimili við Heimagötu 1 1972.
Sigrún lést 1981.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.