Sighvatur Bjarnason (framkvæmdastjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sighvatur Bjarnason framkvæmdastjóri í fiskvinnslu í Riga í Lettlandi, fæddist 4. janúar 1962.
Foreldrar hans voru Bjarni Sighvatsson frá Ási, sjómaður, stýrimaður, verkstjóri, stjórnarformaður, f. 2. desember 1932, d. 9. október 2018, og kona hans Dóra Guðlaugsdóttir frá Geysi, húsfreyja, kaupmaður, f. 29. desember 1934, d. 26. nóvember 2007.

Börn Dóru og Bjarna:
1. Sigurlaug Bjarnadóttir húsfreyja, deildarstjóri, f. 6. október 1954. Maður hennar Páll Sveinsson.
2. Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir húsfreyja, f. 8. september 1956. Maður hennar Viðar Elíasson.
3. Sighvatur Bjarnason, f. 4. janúar 1962. Kona hans Ragnhildur S. Gottskálksdóttir.
4. Ingibjörg Rannveig Bjarnadóttir, f. 2. september 1970. Maður hennar Halldór Arnarson.
5. Hinrik Örn Bjarnason, f. 15. september 1972. Kona hans Anna Jónína Sævarsdóttir.

Þau Ragnhildur giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Riga.

I. Kona Sighvatar er Ragnhildur Sesselja Gottskálksdóttir af Seltjarnarnesi, húsfreyja, f. 3. júlí 1956. Foreldrar hennar Gottskálk Þorsteinn Eggertsson, f. 8. maí 1934, og Guðrún Einarsdóttir, f. 11. janúar 1936.
Börn þeirrra:
1. Dóra Dúna Sighvatsdóttir, f. 2. desember 1984.
2. Bjarni Sighvatsson, f. 24. mars 1987.
3. Eggert Rafn Sighvatsson, f. 23. desember 1995.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.