Ragnar Sigurjónsson (Skjaldbreið)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Ragnar Sigurjónsson)
Fara í flakk Fara í leit

Ragnar Sigurjónsson ljósmyndari, blaðamaður í Mosfellsbæ, verslunarmnaður á Selfossi fæddist 14. júní 1952 á Skjaldbreið við Urðaveg 36.
Foreldrar hennar voru Sigurjón Jónsson frá Engey, sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 21. október 1923, d. 8. október 1991, og kona hans Bjarnveig Ólafsdóttir, frá Siglufirði, húsfreyja, f. 30. janúar 1924, d. 23. mars 1964.

Börn Bjarnveigar og Sigurjóns:
1. Sigríður Harpa Sigurjónsdóttir, verkakona, húsfreyja á Selfossi, f. 2. janúar 1951 á Skjaldbreið. Fyrrum maður hennar Lýður Ægisson. Maður hennar Héðinn Konráðsson.
2. Ragnar Sigurjónsson, ljósmyndari, blaðamaður í Mosfellsbæ, verslunarmaður á Selfossi, f. 14. júní 1952 á Skjaldbreið. Fyrrum kona Margrét Klara Jóhannsdóttir. Kona hans Sigríður Oddný Stefánsdóttir.
3. Hrönn Sigurjónsdóttir, húsfreyja, starfsmaður á leikskóla í Hafnarfirði, f. 28. janúar 1954. Fyrrum maður hennar Guðbrandur Jónatansson. Fyrrum sambýlismaður Gestur Páll Gunnbjörnsson. Maður hennar Sigurður Már Sigurðsson.
4. Sigurjón Sigurjónsson, verkstjóri, f. 29. desember 1958. Fyrrum kona hans Erna Ólöf Óladóttir.
5. Bylgja Sigurjónsdóttir, húsfreyja í Hafnarfirði, f. 25. september 1962. Fyrrum sambýlismaður Dagur Bjarnason.

Þau Margrét giftu sig 1972, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Búastaðabraur 9 við Gosið 1973, síðar við Bröttugötu 22. Þau skildu.
Þau Sigríður Oddný giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau búa á Selfossi.

I. Kona Ragnars, (1972, skildu), er Margrét Klara Jóhannsdóttir, húsfreyja, verslunarmaður, f. 9. ágúst 1954 í Sunnudal við Kirkjuveg 28.
Börn þeirra:
1. Selma Ragnarsdóttir, f. 28. ágúst 1972 í Eyjum. Sambúðarmaður Kristófer Jónsson.
2. Guðbjörg Ragnarsdóttir, f. 13. apríl 1976 í Eyjum. Sambúðarmaður Þorvaldur Þórarinsson.

II. Kona Ragnars er Sigríður Oddný Stefánsdóttir, f. 15. júní 1957. Foreldrar hennar Stefán Erlendur Þórarinsson, húsasmiður, f. 1. ágúst 1926 á Húsavík, d. 4. mars 2021, og kona hans Aðalheiður Gunnarsdóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1927 á Ísafirði.
Barn þeirra:
3. Ásthildur Ragnarsdóttir, f. 5. júní 2003.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.