Nikulás Illugason (Svaðkoti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Nikulás Illugason vinnumaður fæddist 13. október 1778 og lést 24. júní 1827 í Gvendarhúsi.
Foreldrar hans voru Illugi Erlendsson bóndi á Sperðli, Álfhólum og Vestri-Tungu í Landeyjum, síðast í Oddhól á Rangárvöllum, hreppstjóri í V-Landeyjum, f. 1739, d. 28. desember 1800, og kona hans Sigríður Þorleifsdóttir húsfreyja og bóndi, f. 1745, d. 20. ágúst 1804.

Nikulás var með ekkjunni móður sinni í Oddhól 1810, vinnumaður á Prestbakka á Síðu 1815-1818.
Hann fluttist frá Prestbakka að Ofanleiti 1818, var þar vinnumaður til 1822, er hann fluttist að Svaðkoti og var þar vinnumaður til 1827, en var þá settur niður í Gvendarhúsi og lést þar niðursetningur 1827. Nikulás var ókvæntur og barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.