Matthildur Pálína Matthíasdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Matthildur Pálína Matthíasdóttir saumakona fæddist 22. apríl 1845 í Danskagarði og lést 10. október 1918.
Foreldrar hennar voru Matthías Markússon trésmiður, f. 3. júní 1910 í Dýrafirði, d. 5. maí 1888, og kona hans Sólveig Pálsdóttir ljósmóðir, f. 8. október 1821 á Búastöðum, d. 24. maí 1886.

Börn Sólveigar og Matthíasar:
1. Matthildur Pálína Matthíasdóttir saumakona, f. 22. apríl 1845 í Danskagarði, d. 10. október 1918, ógift og barnlaus.
2. Markús Matthíasson, f. 3. ágúst 1846 í Pétursborg, d. 3. ágúst úr ginklofa.
3. Jón Matthíasson, f. 23. júlí 1847 í Sæmundarhjalli, d. 2. ágúst 1847 úr ginklofa.
4. Karólína Guðrún Matthíasdóttir saumakona í Kaupmannahöfn, f. 16. september 1848 í Landlyst, d. 21. janúar 1942, óg, bl.
5. María Guðrún Matthíasdóttir, f. 30. október 1851 í Landlyst, d. 8. nóvember 1851 „af Barnaveikindum“.
6. María Kristín Matthíasdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 20. desember 1852 í Landlyst, d. 4. febrúar 1920.
7. Sigríður Matthíasdóttir ráðskona í Danmörku, óg., bl., f. 9. desember 1855 í Landlyst, d. 25. desember 1940.
8. Jóhanna Markúsína Matthíasdóttir húsfreyja í Borgarnesi og Reykjavík, f. 29. júlí 1858 í Landlyst, d. 4. september 1900.
9. Matthías Matthíasson kaupmaður í Reykjavík, f. 24. ágúst 1861 í Landlyst, d. 28. febrúar 1937.
10. Andvana sveinbarn fætt 7. júlí 1863 í Landlyst.
11. Jensína Björg Matthíasdóttir, f. 10. október 1864 í Landlyst, d. 25. október 1928.

Matthildur var með foreldrum sínum í æsku. Hún fæddist í Garðinum, en þar bjuggu foreldrar hennar, áður en þau byggðu Landlyst. Hún var með þeim í Landlyst 1860, flutti með þeim til Reykjavíkur 1868, var hjá þeim í Efra-Holti 1870 og 1880. Þau létust bæði á níunda áratugnum og Matthildur var hjá Matthíasi bróður sínum í Holti í Rvk 1890, saumakona þar 1910.
Hún lést 1918, ógift og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.