Matthildur Einarsdóttir (Ofanleiti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Matthildur Einarsdóttir frá Suður-Vík í Mýrdal, húsfreyja fæddist þar 15. maí 1884 og lést 31. desember 1949.
Foreldrar hennar voru Einar Finnbogason frá Þórisholti í Mýrdal, bóndi, f. þar 26. júní 1863, d. 17. ágúst 1944, og barnsmóðir hans Guðríður Brynjólfsdóttir frá Litlu-Heiði í Mýrdal, vinnukona, síðar húsfreyja, f. þar 14. júní 1860, d. 13. ágúst 1935.

Matthildur var tökubarn í Presthúsum í Mýrdal 1884-1885/6, var hjá móður sinni í Suður-Hvammi þar 1888-1889, hjá móður sinni og stjúpa í Reynisdal þar 1890-1901, vinnukona þar 1901-1902, á Litlu-Heiði þar 1902-1905, í Reynishjáleigu þar 1905-1906, fór þá til Rvk, var í Eyjum og kom þaðan 1909. Hún var gift kona á Reyni 1909-1910, húsfreyja í Vík í Mýrdal 1910-1928, var í Rvk 1928-1929, húsfreyja í Vík 1929-1947, var ekkja þar frá 1931. Hún var hjá syni sínum þar 1947 til æviloka.
Þau Sveinn giftu sig 1909, eignuðust fjögur börn.
Sveinn lést 1931 og Matthildur 1949.

I. Maður Matthildar, (11. júlí 1909), var Sveinn Guðmundsson frá Ytri-Skógum u. Eyjafjöllum, smiður, f. þar 16. desember 1884, d. 20. september 1931.
Börn þeirra:
1. Brynjólfur Sveinsson afgreiðslumaður, frystihússstjóri, f. 5. janúar 1909, d. 23. júní 1973.
2. Svanhvít Sveinsdóttir, f. 22. janúar 1911, d. 28. október 1984.
3. Þorgerður Guðrún Sveinsdóttir, f. 8. janúar 1915, d. 10. apríl 1990.
4. Sigríður Sóley Sveinsdóttir Hallgrímsson, f. 26. maí 1918, d. 17. júní 2006.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.