Margrét Guðmundsdóttir (Árbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Margrét Guðmundsdóttir og Brynjólfur Jónsson.

Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja í Syðri-Vatnahjáleigu í A-Landeyjum, (nú Vatnahjáleiga), síðar í Árbæ fæddist 9. ágúst 1874 í Syðri-Vatnahjáleigu í A-Landeyjum og lést 15. september 1959 á Siglufirði.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Jónsson bóndi, f. 11. október 1841 í Eystri-Garðsauka í Hvolhreppi, drukknaði fyrir Kirkjulandssandi í Landeyjum 30. apríl 1879 á leið frá Eyjum, og kona hans Ólöf Pétursdóttir húsfreyja, f. 24. ágúst 1833 í Hólmahjáleigu í A-Landeyjum, d. 27. maí 1915 í Syðri-Vatnahjáleigu.

Fósturbarn Ólafar og Guðmundar og uppeldisbróðir Margrétar var
1. Vigfús Sigurðsson frá Kúfhól í A-Landeyjum, systursonur Ólafar, síðar verkamaður, sjómaður í Neskaupstað, f. 22. október 1862, d. 25. apríl 1937, en hann var fósturfaðir Þorsteins Víglundssonar skólastjóra, sparisjóðsstjóra.

Margrét var með foreldrum sínum fyrstu æviár sín, en faðir hennar drukknaði, er hún var á fimmta árinu.
Hún var með móður sinni í Syðri-Vatnahjálegu 1880, hjá henni þar með Magnús Magnússon ráðsmann 1890.
Þau Brynjólfur giftu sig 1906. Þau bjuggu í Syðri-Vatnahjáleigu í A-Landeyjum 1896-1918, í Stóru-Hildisey 1918-1919 og Tjarnarkoti þar 1919-1923.
Þau fluttust til Eyja 1923, bjuggu í Árbæ. Með þeim 1927 voru sex börn þeirra, 1930 var Guðni sonur þeirra með þeim.
Brynjólfur lést 1932, er hann var á ferð undan Eyjafjöllum í Landeyjar. Margrét bjó að síðustu hjá Þorgrími syni sínum og lést á Siglufirði 1959.

Maður Margrétar, (14. október 1906), var Brynjólfur Jónsson bóndi, síðar hjá Guðna syni sínum í Árbæ, f. 10. apríl 1857 í Syðri-Vatnahjáleigu, d. 15. júni 1832 á leið undan Eyjafjöllum til Landeyja.
Börn Margrétar og Brynjólfs:
1. Jónheiður Magnea Brynjólfsdóttir Eggerz, síðar húsfreyja á Akureyri, f. 16. september 1896, d. 15. júlí 1964. Maður hennar var Guðmundur Eggerz.
2. Guðjón Brynjólfsson síðar skósmiður í Reykjavík, f. 11. apríl 1898, d. 4. júní 1984. Sambýliskona hans var Petrea Jóhannsdóttir
3. Guðmundur Brynjólfsson, f. 8. febrúar 1901, d. 24. maí 1909.
4. Guðni Brynjólfsson sjómaður í Árbæ, síðast í Keflavík, f. 18. maí 1903, d. 31. maí 1985. Kona hans var Þórhildur Sölvadóttir.
5. María Brynjólfsdóttir, síðar húsfreyja í Hallgeirseyjarhjáleigu, f. 1. febrúar 1905, d. 16. apríl 1932. Maður hennar var Gunnar Vigfússon.
6. Þorgrímur Brynjólfsson, sjómaður, síðar kaupmaður á Siglufirði og í Reykjavík, f. 16. febrúar 1908, d. 27. desember 1994. Kona hans var Margrét Ingibjörg Jónsdóttir.
7. Guðmundur Brynjólfsson sjómaður, síðar í Reykjavík, f. 25. maí 1909, d. 12. janúar 1981.
8. Óskar Brynjólfsson línumaður á Ísafirði, f. 28. desember 1910, d. 28. júlí 1978. Kona hans var Björg Rögnvaldsdóttir.
9. Sigurður Nathanel Brynjólfsson húsvörður í Keflavík, f. 20. febrúar 1912, d. 15. júní 1993. Kona hans var Ragnhildur Rögnvaldsdóttir.
10. Jón Brynjólfsson sjómaður, síðar í Reykjavík, f. 4. maí 1913, d. 11. mars 1992. Hann var ókvæntur.
11. Guðrún Brynjólfsdóttir, síðar húsfreyja í Hveragerði, f. 17. desember 1914, d. 15. desember 2010. Maður hennar var Haraldur Sölvason.
Barn Brynjólfs með Önnu Sigurðardóttur, f. 13. júní 1866, á lífi 1896:
12. Guðbjörg Brynjólfsdóttir, f. 8. júní 1894, d. 22. júní 1894.
Barn Brynjólfs með Ólöfu Guðmundsdóttur, f. 4. desember 1878, d. 18. febrúar 1911:
13. Guðbjörg Brynjólfsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 22. október 1897, d. 8. janúar 1980. Maður hennar var Sigurður Sigurðsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.