Margrét Þorbjörnsdóttir (Sjólyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Þorbjörnsdóttir húskona í Sjólyst, síðar húsfreyja í Selkirk í Kanada fæddist 17. september 1853 í Voðmúlastaða-Austurhjáleigu í A-Landeyjum og lést 1. maí 1959 í Kanada.
Foreldrar hennar voru Þorbjörn Jónsson bóndi og formaður við Landeyjasand, f. 24. maí 1810 á Brekkum í Hvolhreppi, d. 22. apríl 1901 á Seljalandi u. Eyjafjöllum, og síðari kona hans Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1820 á Núpi u. Eyjafjöllum, d. 13. mars 1888 á Tjörnum þar.

Systur Guðrúnar móður Margrétar voru
1. Guðrún Sigurðardóttir eldri, húsfreyja á Kirkjubæ, Presthúsum og í Hólshúsi, f. 1. janúar 1827, d. 13. maí 1882.
2. Járngerður Sigurðardóttir húsfreyja í Draumbæ, Túni og Stóra-Gerði, síðar í Fagurlyst, f. 17. september 1830, d. 23. desember 1876.
3. Guðrún Sigurðardóttir yngri, húsfreyja, f. 6. apríl 1834, d. 31. ágúst 1897 í Vesturheimi.

Margrét var með foreldrum sínum í Voðmúlastaða-Austurhjáleigu 1860, í Kirkjulandshjáleigu 1870 og 1880.
Þau Jón komu bæði frá Kirkjulandi í A-Landeyjum að Sjólyst 1882, hann húsmaður, hún bústýra. Þau voru í húsmennsku í Sjólyst 1882-1884, hún ,,honum þjónandi,“ skrifar presturinn 1883. Þau giftu sig 1884 og fluttust til Kanada og settust að í Árnesbyggð á Nýja Íslandi, en bjuggu síðan í Selkirk.
Guðmundur fæddist þeim 1883. Hann fór vestur með þeim.

Maður Margrétar, (25. maí 1884), var Jón Ólafsson húsmaður í Sjólyst, f. 26. apríl 1851 á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi, d. 12. febrúar 1948 í Selkirk í Manitoba í Kanada.
Barn þeirra í Eyjum var
1. Guðmundur Jónsson Ólafsson, f. 12. október 1883, d. 1947.
Börn Vestra:
2. Ólafur Jónsson Ólafsson í Vancouver.
3. Jóhann Maríus Jónsson, d. mánaðargamall.
4. Jóhann Jónsson Ólafsson tinsmiður í Selkirk.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 3. nóvember 1953, bls. 11 og 12.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.