Magnús Magnússon (Hólshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Magnússon sjómaður í Hólshúsi og á Landamótum fæddist 1. júlí 1878 á Dyrhólum í Mýrdal og drukknaði 17. október 1907.
Foreldrar hans voru Magnús Ólafsson bóndi í Hemru og í Eystri-Ásum í Skaftártungu, f. 1834 í Skarðssókn á Landi, d. 11. júní 1900, og barnsmóðir hans Sigríður Hjartardóttir vinnukona, f. 11. september 1841 á Raufarfelli u. Eyjafjöllum.

Bróðir Magnúsar var Ólafur Magnússon vinnumaður í Norðurgarði, f. 10. desember 1880, d. 18. október 1903.

Magnús var með föður sínum á Haugnum (Dyrhólahjáleigu) í Mýrdal 1878-1893, vinnumaður í Görðum þar 1893-1895.
Hann fluttist til Eyja 1896 og stundaði sjómennsku. Bjó hann í Hólshúsi, en á Landamótum, þegar hann drukknaði. Hann féll útbyrðis á leið í Fjallasand.

Kona Magnúsar, (13. febrúar 1904), var Kristín Sigríður Jónsdóttir frá Nýjabæ, f. 24. september 1883, d. 27. maí 1957.
Börn þeirra:
1. Ólafur Magnússon, f. 1905, d. 9. júlí 1905.
2. Magnús Kristinn Magnússon verkamaður, f. 19. október 1906, d. 10. október 1985.


Heimildir