Lúðvík Jóhannsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Lúðvík Jóhannsson.

Lúðvík Jóhannsson sjómaður fæddist 23. nóvember 1913 og lést 13. október 1979.
Foreldrar hans voru Jóhann Stefánsson útgerðarmaður og sjómaður á Skálum á Langanesi, f. 27. september 1876, d. 5. september 1946, og kona hans María Friðriksdóttir húsfreyja, f. 26. mars 1882, d. 9. september 1952.

Lúðvík var með foreldrum sínum í æsku, var á Skálum á Langanesi 1930, var sagður á Akureyri 1932. Hann bjó í Heiðarhöfn þar til 1968, síðan í Eyjum.
Þau Jóhanna Soffía giftu sig. Hún var þá ekkja eftir Friðrik bróður hans. Hann gekk börnum hennar í föðurstað. Þau bjuggu í Heiðarbæ frá 1968. Í Gosinu 1973 bjuggu þau á Kjalarnesi og í Garðinum, en fluttu aftur til Eyja 1974.
Lúðvík lést 1979 og Jóhanna 1992.

I. Kona Lúðvíks var Jóhanna Soffía Hansen húsfreyja, f. 26. maí 1921, d. 5. apríl 1992.
Börn Jóhönnu og fósturbörn Lúðvíks:
1. Jóhann Friðjón Friðriksson vinnuvélastjóri, sjómaður, netagerðarmaður f. 29. september 1939, d. 3. apríl 2021. Kona hans Fríða Eiríksdóttir.
2. Samúel Maríus Friðriksson sjómaður, f. 25. júní 1941, d. 4. september 1995. Kona hans Jóhanna Alfreðsdóttir.
3. María Friðriksdóttir, húsfreyja, útgerðarmaður, verkakona, f. 1. mars 1943, d. 18. febrúar 2022. Maður hennar Bergvin Oddsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.