Kristján Magnússon (verslunarstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristján Magnússon verslunarstjóri og yfirflokksforingi í Herfylkingunni, fæddist 20. júlí 1830 að Nýjabæ og lést 26. febrúar 1865.
Foreldrar Kristjáns voru Skaftfellingar, þau Magnús Guðlaugsson bóndi, hreppstjóri og meðhjálpari í Nýjabæ og kona hans Kristín Ögmundsdóttir húsfreyja.

Kristján Magnússon verzlunarstjóri

Lífsferill

Kristján ólst upp hjá móður sinni og síðar stjúpa, Jóni Árnasyni hreppstjóra. Hann varð ungur verzlunarþjónn, fór til Danmerkur, kom þaðan 1855 og gerðist verzlunarmaður við Godthaabverzlun, sem þeir áttu Thorvald Abel og J. Th. Christensen. Ári seinna varð hann þar verzlunarstjóri og gegndi því starfi til ársins 1862. H.E. Thomsen hafði keypt verzlunina 1858, en verzlaði áður á Ísafirði og Þingeyri. Allmikill halli var á verzluninni meðan Kristján var við hana og stafaði það líklega af miklu tapi Kristjáns á útgerð, sem gekk illa þessi ár og útgerðin því í mikilli skuld. Hann varð þá að hætta hjá Gaadthaabverzlun og varð verzlunarmaður í Garðinum hjá N. N. Bryde, en Pétur Bjarnasen verzlunarstjóri þar ábyrgðist greiðslu skuldarinnar við H. E. Thomsen.
Kristján var harðduglegur maður og rak um tíma mikinn útveg. Árið 1862 átti hann hálfan áttæringinn Langvinn og Gideon og minna í þriðja bátnum. Þá átti enginn meiri skipaeign í Eyjum.
Síðustu árin bjó hann í Sjólyst.

Fjölskylda

Kristján átti konu af dönskum ættum, Petreu Andreu Magnússon, fædda Nielsen, f. um 1830. Þau giftu sig 23. júní 1859 í Eyjum. Eftir lát hans fluttist hún til Danmerkur með syni þeirra tvo, Kristján Carl, f. 24. marz 1860, og Magnús Peter Andreas, f. 16. janúar 1862.

  1. Kristján (Christian Carl Magnusen), f. 24. mars 1860. Hann varð framkvæmdastjóri Nordisk Brandforsikring, (tryggingafélags í Kaupmannahöfn), og samdi kennslubók í tryggingafræðum. Hann aðstoðaði við stofnun Brunabótafélags Íslands á ýmsan hátt. Dóttir hans var Eli Magnusen forstöðukona Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn.
  2. Magnús Peter Andreas, f. 16. janúar 1862. Hann varð skrifstofustjóri hjá skipasmíðafélaginu Burmeister og Wain. Dóttir hans var Ingeborg Wennerwald Magnusson listmálari.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.