Kristinn Ólafsson (líffræðingur)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Kristinn Ólafsson.

Kristinn Ólafsson líffræðingur fæddist 10. febrúar 1978 og lést 22. mars 2017.
Foreldrar hans Inga Þórarinsdóttir, húsfreyja, kennari, f. 14. nóvember 1946, og maður hennar Ólafur Magnús Kristinsson, sjómaður, skipstjóri, hafnarstjóri, f. 2. desember 1939, d. 4. janúar 2018.

Börn Ingu og Ólafs:
1. Helga Ólafsdóttir húsfreyja, öryrki, f. 20. ágúst 1970. Fyrrum sambúðarmaður hennar Örn Guðmundsson.
2. Lilja Ólafsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 17. febrúar 1972. Maður hennar Gunnar Sigurðsson.
3. Guðlaugur Ólafsson verkfræðingur, f. 27. október 1973. Sambúðarkona hans Kristín Sigurðardóttir.
4. Kristinn Ólafsson líffræðingur, var við doktorsnám, f. 10. febrúar 1978, d. 22. mars 2017. Kona hans Margrét A. Jónsdóttir.
5. Hildur Ólafsdóttir sagnfræðingur, starfsmaður við erfðarannsóknir, f. 29. september 1984. Barnsfaðir hennar Guðni Guðjónsson. Sambúðarmaður hennar Gregory John Dixon.

Kristinn var með foreldrum sínum í æsku, varð stúdent í MA 1999 og lauk B.Sc.-prófi í líffræði í HÍ 2003. Hann stundaði doktorsnám í stofnerfðafræði við HÍ.
Kristinn var í störfum hafnarvarðar í námsleyfum. Frá árinu 2007 vann hann hjá líftæknifyrirtækinu Prokaria og hjá Matís. Hjá Matís vann hann margþætt verkefni, sem tengdust alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Hann var félagi í AKÓGES í Rvk.
Þau Margrét Arnheiður giftu sig 2005, eignuðust tvö börn.
Kristinn lést 2017.

I. Kona Kristins, (27. ágúst 2005), er Margrét Arnheiður Jónsdóttir lögfræðingur, f. 10. september 1978. Foreldrar hennar Jón Þorsteinsson, fyrrverandi prestur í Grundarfirði og Mosfellsbæ, f. 19. febrúar 1946, og Sigríður Anna Þórðardóttir, fyrrverandi alþingismaður, ráðherra og sendiherra, f. 14. maí 1946.
Börn þeirra:
1. Sigríður Anna Kristinsdóttir, 16. ágúst 2003 í Rvk.
2. Inga Guðrún Kristinsdóttir, f. 18. maí 2008.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.