68.821
breyting
m (Friðrik Gíslason færð á Friðrik Gíslason (Hlíðarhúsi)) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 12: | Lína 12: | ||

=Frekari umfjöllun= | |||
'''Friðrik Gísli Gíslason''' ljósmyndari frá [[Hlíðarhús]]i fæddist 11. maí 1870 og lést 15. janúar 1906.

Foreldrar hans voru [[Gísli Stefánsson (kaupmaður)|Gísl Stefánsson]] kaupmaður, f. 28. ágúst 1842 d. 25. september 1903, og kona hans [[Soffía Lisebeth Andersdóttir]] húsfreyja, f. 8. október 1847, d. 10. júní 1936.

Kona Friðriks var [[Anna Petrea Thomsen|Anna Thomsen]] (Anna Jesdóttir Gíslason á mt. 1910), f. 9. maí 1871 í Eyjum, d. 3. maí 1937, hálfsystir [[Guðmundur Jesson|Guðmundar Thomsen Jessonar]] á [[Litla-Grund|Litlu-Grund]], f. 13. nóvember 1867, d. 19. apríl 1931.

Börn Friðriks og Önnu voru:

1. [[Jóhanna Júlíana Friðriksdóttir|Jóhanna]], f. 4. júlí 1895 í Reykjavík, d. 20. júní 1979, gift [[Daníel Kr. Oddsson (símstjóri)|Daníel Kr. Oddssyni]] loftskeytamanni, er fórst á Reykjaborg af styrjaldaraðgerðum. Hann var um tíma símastjóri í Eyjum.

2. [[Olga Friðriksdóttir|Olga]], f. 14. júní 1898 í Reykjavík, d. 30. júlí 1944.

3. [[Soffía Friðriksdóttir|Soffía]], f. 22. júlí 1900 í Reykjavík, d. 12. ágúst 1968.

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Friðrik var hinn mesti léttleikamaður, kátur og skemmtilegur. Hann var mikið við fuglaveiðar og telur [[Jón Jónsson (Brautarholti)|Jón Jónsson]] frá [[Dalir|Dölum]], að hann hafi verið efni í góðan bjargveiðimann, en sneri sér að öðru.

Hann var alinn upp hjá foreldrum sínum að [[Hlíðarhús]]um og tók mikinn og virkan þátt í nýtingu þeirra leigumála, er faðir hans nytjaði.

En Friðrik fór snemma héðan og gerðist ljósmyndasmiður í Reykjavík og víðar og þótti prýðisgóður sem slíkur. Sundkennari var hann hér með þeim fyrstu og kenndi mörgum unglingum sund.

Hafði einu sinni rétt sleppt sér, er hann fór á lærvað suður af „Skerinu“ sem venjulega var farið, ef sjór var dauður, um 15 faðma sig. Vildi ekki láta binda sig, en var ekki útbúinn að veiðimannasið, t.d. í fjallamannabuxum. Þótti víst minnkun í að láta binda sig, sem er þó siður nær ævinlega.

{{Árni Árnason}} | |||
{{Heimildir| | |||
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | |||
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012. | |||
*Manntöl. | |||
*Íslendingabók.is.}} | |||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | |||
[[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]] | |||
[[Flokkur: Íbúar í Hlíðarhúsi]] | |||
[[Flokkur: Ljósmyndarar]] | [[Flokkur: Ljósmyndarar]] | ||