83
breytingar
Lína 302: | Lína 302: | ||
Nú skaltu bráðum fá nasasjón af skrifum samvinnuskólapiltsins í minn garð og skólans, áður en Flokkurinn tapaði sjötta sætinu í bæjarstjórninni | Nú skaltu bráðum fá nasasjón af skrifum samvinnuskólapiltsins í minn garð og skólans, áður en Flokkurinn tapaði sjötta sætinu í bæjarstjórninni | ||
'''Honum bauð í grun''' | |||
Þegar „gamli maðurinn á Tanganum", Gunnar Ólafsson, kaupmaður og konsúll, tók að hugleiða tilveruna og umhverfið sumarið 1933, árið fyrir fyrsta tapið, komst hann að þeirri niðurstöðu, að mikil hætta væri í aðsigi um völd þeirra Tangamanna í bænum, ef ekkert yrði að gert. Hann var skynugur, gamli maðurinn, og skildi, að með kynslóðaskiptum gat jafnvægið raskast í bænum þeim í óhag. Svo voru „vondir menn" starfandi við skóla bæjarins, að minnsta kosti einn við gagnfræðaskólann. | |||
Já, víst var um það, að þar starfaði vondur maður „með svartan blett á tungunni". - Já, hörmulegt var þetta allt saman og mikil þörf á að taka nú til að skrifa og reyna að hamla gegn þróuninni - benda fólki á „svörtu blettina" á tungu þessara manna og margskonar mannlýti, sem nú virtust til skýja hafin á þessum tímum hinna andsnúnu stöðuveitinga í þjóðfélaginu. | |||
Og kaupmaður þessi og konsúll lét sannarlega ekki sitja við hugsunina eina. Hann var atorkumaður að hverju sem hann gekk. Nú tók hann að skrifa í flokksblaðið skammargreinar, svo að um munaði. I einni þeirra stóð þessi klausa: „Þegar mér verður hugsað til þeirra manna, sem með ósannindum og hatursfullri framkomu í ræðu og riti hafa safnað svo mörgum svörtum blettum á tungu sér, að tungan hlýtur að vera orðin alsvört, þá get ég helzt ekki varizt því, að mér dettur sérstaklega einn maður í hug, sem hefur skólastjórastörf með höndum . . ." | |||
Þarna fékk ég það óþvegið og meira í þessari grein, sem ég þreyti þig ekki á að hafa hér eftir. — Veslingurinn ég, sem hélt mig aldrei hafa sagt ósatt orð vísvitandi. Hitt gat ég fallizt á að taka við töluverðu af pólitískum skömmum, því að ég hafði skrifað um þörf þá að byggja gagnfræðaskólahús í bænum o. fl. í þeim dúr, en þær framkvæmdir vildu bæjarvöldin ekki sökum þess, að þá hlutu útsvörin að hækka að mun, og ekki gátu hinir kúguðu greitt nokkur útsvör að ráði. | |||
Það hlaut að vera hlutskipti þeirra ríku, og það var bölvað hlutskipti, sem ekki mátti eiga sér stað! | |||
breytingar