83
breytingar
Lína 299: | Lína 299: | ||
Þess vegna reið á því að halda áfram að skrifa. Það gerði samvinnuskólapilturinn og dró hvergi af sér, enda hvattur til þess óspart. Skammirnar dundu á okkur hinum vikulega. | Þess vegna reið á því að halda áfram að skrifa. Það gerði samvinnuskólapilturinn og dró hvergi af sér, enda hvattur til þess óspart. Skammirnar dundu á okkur hinum vikulega. | ||
Eg má til með að skrifa hér upp nokkrar glefsur úr greinum hans, sem leiddu til þess, að hann gekk sér gjörsamlega til húðar í þessu starfi sökum skorts á dómgreind og eigin vitund um takmörk sín. Hinir hógværari og skynsamari menn í Flokknum mótmæltu og hótuðu. Aðrir tóku sínar ákvarðanir þegjandi og hljóðalaust. Við fundum hin hallkvæmu áhrif af skrifum þessum. Fylgi Flokksins fór minnkandi. Fólkið þroskaðist og óx frá ósköpum þessum. | Eg má til með að skrifa hér upp nokkrar glefsur úr greinum hans, sem leiddu til þess, að hann gekk sér gjörsamlega til húðar í þessu starfi sökum skorts á dómgreind og eigin vitund um takmörk sín. Hinir hógværari og skynsamari menn í Flokknum mótmæltu og hótuðu. Aðrir tóku sínar ákvarðanir þegjandi og hljóðalaust. Við fundum hin hallkvæmu áhrif af skrifum þessum. Fylgi Flokksins fór minnkandi. Fólkið þroskaðist og óx frá ósköpum þessum. | ||
Við bæjarstjórnarkosningarnar árið 1934 tapaði Flokkurinn sjötta fulltrúanum í bæjarstjórn kaupstaðarins. Þá þegar hafði mikið áunnizt, fannst okkur. Stórt skarð var brotið í valdavegg eiginhagsmunaklíkunnar í bænum, konsúlanna og kaupmannanna með nánustu fylgifiskum. Enn var það verk óunnið að fella fimmta fulltrúann þeirra frá setu í bæjarstjórn, svo að Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum gæti eignazt veglega byggingu fyrir starfsemi sína. Gegn þeirri hugsjón minni stóð öll þessi eiginhagsmunaklíka sem samfelldur múrveggur. Það skyldi aldrei gerast í minni skólatíð þar, sögðu þeir. - Við sjáum hvað setur. | |||
Nú skaltu bráðum fá nasasjón af skrifum samvinnuskólapiltsins í minn garð og skólans, áður en Flokkurinn tapaði sjötta sætinu í bæjarstjórninni | |||
breytingar