108
breytingar
(veiðitæki) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 20: | Lína 20: | ||
[[Mynd:Peyji med lunda.jpg|thumb|Ungur piltur að veiða sinn fyrsta lunda]] | [[Mynd:Peyji med lunda.jpg|thumb|Ungur piltur að veiða sinn fyrsta lunda]] | ||
Ef að nægilega gott uppflog er geta veiðimenn veitt allt upp í 100 lunda á klukkustund, og jafnvel upp í 600 fugla á dag. 100 fugla búnt er kallað kippa. | Ef að nægilega gott uppflog er geta veiðimenn veitt allt upp í 100 lunda á klukkustund, og jafnvel upp í 600 fugla á dag. 100 fugla búnt er kallað kippa. | ||
'''Atferli veiðimanna''' | |||
Veiðimaður sest venjulega nálægt brún og velur sér stað, þar sem minnst ber á honum og háfnum af því að lundinn er eftirtektarsamur og hræddur við háfinn. Veiðimaðurinn stillir oft nokkrum dauðum lundum í kringum staðinn sem hann er á til þess að hæna fuglinn. Þá rekur hann teina eða tálgaðar spýtur í fuglinn og reynir að láta lundann sitja sem réttastann. | |||
Þá stinga lundaveiðimenn oft rauðri veifu einni eða tveimur háfslengdum fyrir ofan staðinn. Einnig þótti gott að hafa fjörmikinn hund sem var að snuðrast í kringum veiðistaðinn. Þetta allt var gert til þess að hæna lundann, gera hann forvitinn og láta hann nálgast staðinn sem veiðimaðurinn var á. | |||
'''Fuglinn veiddur''' | |||
Þegar lundinn flýgur yfir í hæfilegum fjarska, þá veifar veiðimaðurinn háfnum upp undir lundann og eftir honum. Ef veiðimaðurinn nær honum, flækist fuglinn í netinu og veiðmaðurinn dregur háfinn að sér, greiðir fuglinn úr, drepur hann og bregður honum undir belti. Þannig er haldið áfram á meðan veður leyfir. | |||
'''Veðrið''' | |||
Ekki er unnt að veiða í logni og heldur ekki í miklum stormi, stinningskaldi er besta veiðiveðrið og ekki er verra þótt rigning sé. Enda veiðist lundi oft best í regni og dimmviðri. | |||
Staðarval veiðmannsins byggist að mestu á hvaða vindátt er, því að máli skiptir hvort veiðimaðurinn sjáist eða ekki. | |||
Ýmis [[veiðitæki]] hafa verið notuð til lundaveiða en nú á dögum er háfurinn nær eingöngu notaður. | Ýmis [[veiðitæki]] hafa verið notuð til lundaveiða en nú á dögum er háfurinn nær eingöngu notaður. | ||
Lína 27: | Lína 43: | ||
=== Matreiðsla === | === Matreiðsla === | ||
[Flokkur:Stubbur]] |
breytingar