261
breyting
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
| Lína 1: | Lína 1: | ||
Fædd.16.ágúst 1840. D. 8.ágúst 1919 | |||
Foreldrar hennar voru Gísli Andrésson,á Bakkavöllum í Hvolhreppi, | |||
og Þórelfur Kortsdóttir frá Árbæ í Holtum. | |||
Gísli var tvígiftur og var Þórelfur seinni kona hans.Þorgerður átti þrjú | |||
alsystkini og sjö hálfsystkini. | |||
Þorgerður var fædd í Görðum sem voru fyrir austan Kirkjubæina | |||
niður við sjó. | |||
Eftir fráfall Gísla bjuggu þær mæðgur í Görðum.Önnuðust þær bú | |||
séra Brynjólfs Jónssonar en hann nytjaði allar þrjár prestjarðirnar | |||
á Kirkjubæ.Þorgerður var glæsileg kona og fékk í vöggugjöf yndisþokka | |||
móður sinnar dug og táp.Hennar biðu örlög sem hefðu beygt flesta. | |||
Tvo eiginmenn missti hún í sjóslysum,Sá fyrri, Magnús Diðriksson, fórst | |||
með þilskipinu Hansínu.Þau eignuðust soninn Guðmund. | |||
Sá síðari,Snjólfur Þorsteinsson,fórst meðvertíðarbátnum Blíð. | |||
Þau eignuðust soninn Magnús sem var skírður í höfuðið á | |||
fyrri manni þorgerðar. Magnús litli lést úr barnaveikinni. | |||
Seinna giftist þorgerður,Sigurði Sigurfinnssyni hreppstjóra. | |||
Þorgerður og Sigurður eignðust tvö börn,soninn Högna og dótturina | |||
Sígríði Hildi sem lést á fimmta ári. | |||
Þegar Þorgerður og Sigurður slitu samvistum lét hún byggja sér hús | |||
niður við höfnina sem hún nefndi Skel. | |||
Þar fleytti hún sér fram í ymsum störfum í þágu sjómannastéttarinnar | |||
En vinnuþrekið var tekið að þverra,enda unnið ýmsa erfiðisvinnu | |||
á lífsleiðinni,td. Við smölun og rúninga í úteyjum,hún gróf eftir | |||
hvannarótum í Dufþekju, réri út í Elliðaey til lundaveiða | |||
auk þess að ala önn fyrir heimili foreldra sinna | |||
Högni í Vatnsdal sonur hennar lýsir henni sem afburðarkonu | |||
í þrekraunum. Segir hann svo frá. | |||
Hún bjargaðist er árabát hlekkstist á og skolaðist upp á kletta. | |||
Rifnaði stór hárfylla af höfði hennar sem var næld niður | |||
með títiprjónum og greri fljótt án læknisaðstoðar. | |||
Á dimmu síðkvöldi bárust torkennileg hljóð neðan úr fjöru. | |||
Enginn þorði að athuga hverju þetta sætti nema Þorgerður | |||
Hún snaraðist niður í fjöru og sá þá stórlúðu berjast um | |||
í flæðarmálinu.Þar fékk Þorgerður væna búbót. | |||
Er hún bjó með móður sinni í Görðum austur á Kirkjubæ | |||
brestur á eina nóttina austan fárviðri með snjókomu, | |||
Um tvöleytið um nóttina er barið harkalega að dyrum.Þorgerður | |||
gengur til dyra. Fyrir utan stendur stór hópur manna. | |||
Ekki skyldi hún tungumál þeirra en áttaði sig á að þeir hlytu | |||
að vera skipbrotsmenn.Klæddi hún sig og hélt með skipbrotsmennina | |||
til sýslumannsins sem bjó á Vílborgarstöðum.Er hún barðist á móti | |||
veðurofsanum heim aftur sá hún bregða fyrir fallegri skonnortu | |||
sem skolast hafði upp á slétta móklöpp,Reyndist þetta vera frönsk | |||
skonnorta.Þorgerður stóð sterk gegum lífsins ólgusjó.Mætti örlögum sem | |||
hefðu bugað flesta menn. | |||
Í minningu langömmu minnar | |||
Hulda Sigurðardóttir | |||
Heimildir Blik og fl | |||
[[Flokkur:Fólk]] | [[Flokkur:Fólk]] | ||
breyting