Karen Klog

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Karen Klog húsfreyja í Danmörku, fæddist um 1769 í Eyjum og lést 20. nóvember 1861 í Khöfn.
Foreldrar hennar voru Hans Jensen Klog kaupmaður í Eyjum, síðar í Danmörku og kona hans Abelone Klog, fædd Holm, húsfreyja.

Börn Abelone og Hans Klogs hér:
1. Ingeborg Klog húsfreyja, f. 1766, d. 6. maí 1843 i Goslunde í Danmörku. Maður hennar Jorgen Borch.
2. Tómas Klog, sem varð landlæknir að Nesi við Seltjörn, fæddur 15. apríl 1768 í Eyjum og lézt 31. janúar 1824 í Nyköbing á Falstri. Hann var skipaður landlæknir 25. maí 1804 og veitt lausn 23. júní 1815. Kona hans Magdalene Sophie Klog.
3. Karen Klog, f. 1769 í Eyjum. Maður hennar Soren Jorgensen Hee.
4. Jensine Klog, f. um 1775 í Eyjum.
5. Jens verzlunarstjóri í Eyjum (1801), f. um 1778, d. 1811.
6. Anna Soffía, f. um 1778, á lífi 1860.

Þau Soren giftu sig 1793, eignuðust átta börn.
Þau voru:
1. Karen Abelone Hee, f. um 1794.
2. Louise Frederikke Hee, f. um 1799.
3. Hans Jorgen Hee, skírður 28 desember 1797.
4. Anne Thomine Hee, f. um 1800.
5. Peder Christian Hee, f. 20 Feb 1803.
6. Jorgen Mathias Hee, f. 23. júní 1805.
7. Jacob Friderich Hee, f. 26. apríl 1807.
8. Henriette Pauline Hee, f. 26. október 1809.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.