Júlía Andersen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Júlía Petra Andersen húsfreyja, innanhússarkitekt fæddist 24. júní 1949.
Foreldrar hennar voru Emil Marteinn Andersen frá Sólbakka, útgerðarmaður, skipstjóri, f. 31. júlí 1917, d. 17. mars 1995, og kona hans Þórdís Jóelsdóttir frá Sælundi, húsfreyja, f. 15. febrúar 1916, d. 17. júlí 1996.

Börn Þórdísar og Emils:
1. Guðbjörg Októvía Andersen húsfreyja og skrifstofukona á sýsluskrifstofunni, f. 9. febrúar 1943. Maður hennar er Borgþór Eydal Pálsson.
2. Jóhanna Emilía Andersen húsfreyja, saumakona og leikskólastarfsmaður, f. 4. júlí 1944. Maður hennar er Kristján Bogason.
3. Júlía Petra Andersen húsfreyja og innanhússarkitekt, f. 24. júní 1949. Maður hennar er Hjalti Elíasson.
4. Jóel Þór Andersen skipstjóri, f. 6. september 1950. Kona hans er Þuríður Jónsdóttir.
5. Mardís Malla Andersen byggingafræðingur, f. 2. apríl 1959. Sambýlismaður var Birgir Jónsson. Maður hennar, (skildu), var Sigurður Gíslason.

Júlía var með foreldrum sínum, á Heiðarvegi 13.
Hún lærði innanhússarkitektúr í Kaupmannahöfn, lauk námi 1979.
Hún vann við arkitektúr í fyrirtækinu ASK arkitektar í 30 ár.
Þau Hjalti giftu sig 1986, eignuðust ekki börn. Þau búa við Laugateig 16 í Reykjavík.

I. Maður Júlíu, (31. desember 1986), er Hjalti Elíasson frá Varmadal, rafvirki, stýrimaður, f. 25. júlí 1953.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Júlía.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.