Jónas Ewald Jónasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jónas Ewald Jónasson fæddist 2. október 1962 að Illugagötu 11 og lést 1. mars 1987.
Foreldrar hans voru Jónas Guðmundsson húsasmíðameistari, f. 21. desember 1928, d. 14. mars 1998, og kona hans Ursula Marie Helene Quade Guðmundsson frá Stettin í Þýskalandi, húsfreyja, f. 17. janúar 1931.

Börn Úrsúlu og Jónasar:
1. Sigurbjörg Helena Jónasdóttir, f. 10. mars 1951. Maður hennar Halldór Almarsson.
2. Ómar Jónasson, f. 19. júní 1953 að Hásteinsvegi 8, d. 16. maí 2014. Kona hans Kristín Björgvinsdóttir.
3. Richard Guðmundur Jónasson, f. 7. janúar 1956 á Hásteinsvegi 8. Sambúðarkona hans Guðrún Egilsdóttir.
4. Jónas Ewald Jónasson, f. 2. október 1962 að Illugagötu 11, d. 1. mars 1987. Kona hans Guðrún Jóhannsdóttir.

Jónas var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Guðrún giftu sig, eignuðust eitt barn og Guðrún átti eitt barn áður.
Jónas lést í ferðaslysi 1987.

I. Kona Jónasar, (12. maí 1984), er Guðrún Jóhannsdóttir, f. 26. október 1960. Foreldrar hennar Jóhann Þórarinsson, f. 12. júlí 1921, d. 21. janúar 2005, og kona hans Ingunn Ingvarsdóttir, f. 16. febrúar 1921, d. 22. mars 2010.
Barn þeirra:
1. Úrsúla Linda Jónasdóttir, f. 27. júní 1982. Barnsfaðir hennar Björn Ágúst Magnússon. Sambúðarmaður hennar Michael Bragi Whalley.
Barn Guðrúnar og fósturbarn Jónasar:
2. Ingunn Hallgrímsdóttir, f. 16. febrúar 1980.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 13. mars 1987. Minning Jónasar.
  • Morgunblaðið 15. apríl 2010. Minning Ingunnar Ingvarsdóttur.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.