Jónína Sigurbjörg Magnúsdóttir (Brimhólabraut)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jónína Sigurbjörg og Rúnar Sigurður.

Jónína Sigurbjörg Magnúsdóttir, frá Brimhólabraut 17, húsfreyja, verkakona fæddist þar 22. mars 1952.
Foreldrar hennar voru Magnús Sigurðsson frá Boðaslóð 2, sjómaður, f. 29. apríl 1924, d. 18. nóvember 1987, og kona hans Guðrún Kristófersdóttir frá Bjarmahlíð, húsfreyja, f. 10. desember 1925, d. 7. janúar 2018.

Börn Guðrúnar og Magnúsar:
1. Sigmar Magnússon skipstjóri, f. 25. september 1948 á Boðaslóð 2. Kona hans er Dóra Bergs Sigmundsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 6. nóvember 1944.
2. Kristín Þóra Magnúsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 12. september 1950 á Brimhólabraut 17. Maður hennar er Einar Jónsson sjómaður, f. 5. janúar 1955 í Reykjavík.
3. Jónína Sigurbjörg Magnúsdóttir verkakona, f. 22. mars 1952 að Brimhólabraut 17. Maður hennar er Rúnar Sigurður Þórisson sjómaður frá Kópavogi, f. 3. september 1945.
4. Bjarney Magnúsdóttir húsfreyja, leikskólastjóri, f. 30. janúar 1959 á Sjúkrahúsinu. Maður hennar er Hörður Baldvinsson forstöðumaður frá Steinholti.

Jónína eignaðist barn með Sveini Rúnari 1970.
Þau Rúnar Sigurður giftu sig 1982. Þau búa við Hólagötu 14.

I. Barnsfaðir Jónínu er Sveinn Rúnar Valgeirsson, skipstjóri, f. 5. október 1951 í Rvk.
Barn þeirra:
1. Birgir Magnús Sveinsson, sjómaður, f. 21. júní 1970. Barnsmóðir hans Eyja Bryngeirsdóttir.

II. Maður Jónínu, (10. desember 1982), er Rúnar Sigurður Þórisson, stýrimaður, f. 3. september 1945 í Kópavogi. Foreldrar hans Þórir Runólfsson, verkamaður, f. 9. maí 1909, d. 4. ágúst 1989, og kona hans Jónína Ingiríður Jóhannesdóttir, húsfreyja, f. 4. október 1900, d. 19. október 1983.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.