Jóhanna Jónsdóttir (Klöpp)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Jónsdóttir frá Efri-Úlfsstöðum í A.-Landeyjum, verkakona í Klöpp við Njarðarstíg 18 fæddist í. júní 1870 og lést 9. nóvember 1957.
Foreldrar hennar voru Jón Þórðarson frá Stóru-Hildisey í A.-Landeyjum, bóndi á Efri-Úlfsstöðum, f. 31. október 1841, d. 15. apríl 1902, og kona hans Járngerður Árnadóttir frá Efraseli í Landsveit, húsfreyja, f. 28. október 1847, d. 23. desember 1914.

Börn Járngerðar og Jóns - í Eyjum:
1. Jóhanna Jónsdóttir verkakona í Klöpp, f. 9. júní 1870, d. 9. nóvember 1957.
2. Árni Jónsson útgerðarmaður í Garðsauka, f. 28. maí 1886, d. 25. apríl 1969.
3. Þorgeir Jónsson verkamaður, f. 23. febrúar 1890, d. 5. febrúar 1959.

Jóhanna var með foreldrum sínum í æsku.
Hún var vinnukona á Eystri-Fíflholtshjáleigu í V.-Landeyjum 1890.
Jóhanna flutti til Eyja 1907, eignaðist barn með Þórði 1909.
Hún var húsfreyja í Klöpp 1910 með barnið, og Járngerður móðir hennar bjó hjá henni, bjó þar enn 1930 með Jónínu dóttur sinni, í Klöpp 1940, var húskona í Klöpp 1945 og 1949.
Jóhanna dvaldi að síðustu á Elliheimilinu.
Hún lést 1957.

I. Barnsfaðir Jóhönnu var Þórður Þórðarson, þá í Ási, bóndi og trésmiður á Rauðafelli u. Eyjafjöllum 1901, síðar hermaður í kanadíska hernum í fyrri heimsstyrjöldinni, f. 15. maí 1867, d. 28. september 1955.
Barn þeirra:
1. Jónína Þórðardóttir, f. 12. apríl 1909, d. 16. mars 1994.



Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.