Jóhann P. Jónsson (kaupmaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Pétur Jónsson framkvæmdastjóri, kaupmaður, bæjarfulltrúi fæddist 1. desember 1882 í Lýtingsstaðakoti í Skagafirði og lést 11. október 1971.
Foreldrar hans voru Jón Jónsson bóndi, f. 22. september 1845, d. 12. ágúst 1926, og kona hans Björg Pétursdóttir húsfreyja, f. 18. janúar 1848, d. 10. janúar 1923.

Jóhann var á Vatni í Hofssókn í Skagafirði 1901, kaupmaður á Siglufirði 1910.
Hann flutti til Eyja 1925, var framkvæmdastjóri á Grímsstöðum við Skólaveg 27 1927, kaupmaður á Þingvöllum við Njarðarstíg 1 1930, bæjarfulltrúi 1930-1934.
Jóhann bjó síðast á Siglufirði.
Þau Herdís giftu sig 1926, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Þingvöllum 1930, fluttu til Siglufjarðar um 1933.
Herdís lést 1968 og Jóhann 1971.

I. Kona Jóhanns, (1926), var Herdís Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 30. ágúst 1893 í Fljótum í Skagafirði, d. 23. nóvember 1968.
Börn þeirra:
1. Þorsteinn Jóhannsson stýrimaður, f. 8. júní 1927 á Grímsstöðum, drukknaði 22. febrúar 1957.
2. Sigurjón Jóhannsson skipstjóri, f. 8. september 1928 á Siglufirði, d. 22. desember 2010.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.