Jóhann Jónasson (Grundarbrekku)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Jónasson frá Grundarbrekku, verkamaður, starfsmaður Bæjarins, sorphreinsunarmaður fæddist 5. maí 1940.
Foreldrar hans voru Jónas Guðmundsson frá Refsstöðum í A-Hún., sjómaður, verkamaður, verslunarmaður, f. 9. mars 1886, d. 20. febrúar 1979, og kona hans Guðrún Magnúsdóttir frá Grundarbrekku, húsfreyja, f. þar 27. júlí 1906, d. 20. maí 1987.

Börn Guðrúnar og Jónasar:
1. Jóhanna Jónasdóttir, f. 15. júlí 1931, d. 2. október 1938.
2. Jóhann Hilmar Jónasson bifreiðastjóri á Bifreiðastöð Vestmannaeyja og hjá Vestmannaeyjabæ, f. 14. apríl 1934, d. 16. mars 2016. Kona hans Ester Árnadóttir.
3. Einar Guðni Jónasson múrari, f. 24. nóvember 1938. Kona hans er Halldóra Traustadóttir.
4. Jóhann Jónasson verkamaður, bæjarstarfsmaður, f. 5. maí 1940. Ókvæntur.
5. Sigurbjörg Jónasdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 7. febrúar 1942. Maður hennar er Viðar Óskarsson.
6. Magnús Þór Jónasson bókhaldari, kaupmaður, framkvæmdastjóri, f. 4. maí 1947, d. 24. apríl 2019. Kona hans var Guðfinna Óskarsdóttir.

Jóhann var með foreldrum sínum í æsku og bjó hjá þeim alla tíð þeirra og býr enn á Grundarbrekku.
Hann hefur unnið verkamannastörf, við fiskvinnslu, verið sorphreinsunarmaður og síðar starfsmaður á bæjarskrifstofunum. Jóhann er ókvæntur og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.