Jóhann Hergils Steinþórsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Hergils Steinþórsson frá Hergilsey á Breiðafirði, sjómaður, vélstjóri, verkamaður fæddist 12. október 1923 í Flatey þar og lést 8. mars 1993.
Foreldrar hans voru Steinþór Einarsson húsmaður, bóndi, sjómaður, síðar skipstjóri í Stykkishólmi, f. 27. september 1895, d. 12. júní 1968, og kona hans Jóhanna Stefánsdóttir húsfreyja, f. 24. júlí 1897, d. 21. október 1987.

Jóhann var með foreldrum sínum, í Hergilsey, í Flatey, í Rauðseyjum, Bjarneyjum og aftur í Flatey.
Hann öðlaðist vélstjórnarréttindi.
Jóhann réri með föður sínum í æsku, síðar varð hann vélstjóri í Vestmannaeyjum. Hann sneri til Lands við Gosið 1973, settist að í Stykkishólmi. Þar vann hann við fiskverkun.
Þau Elín giftu sig, eignuðust fjögur börn í Eyjum. Þau bjuggu síðast á Arnarfelli við Brekastíg 36.
Jóhann Hergils lést 1993 og Elín 2010.

I. Kona Jóhanns Hergils var Elín Sóley Sigurðardóttir húsfreyja, f. 9. desember 1935, d. 21. október 2010.
Börn þeirra:
1. Heimir Laxdal Jóhannsson, f. 25. júlí 1959.
2. Ægir Breiðfjörð Jóhannsson, f. 18. janúar 1961.
3. Steinþór Br. Jóhannsson, f. 21. júní 1962.
4. Þorbjörg Lilja Jóhannsdóttir, f. 28. júní 1967.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.