Ingveldur Guðmundsdóttir (París)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingveldur Guðmundsdóttir frá París, síðar húsfreyja í Utah fæddist 30. desember 1874 og lést 11. júlí 1966.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson tómthúsmaður, lóðs í París, f. 22. janúar 1842, d. 24. ágúst 1919, og Jóhanna Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1. október 1841, d. 22. apríl 1935.

Börn Guðmundar og Jóhönnu:
1. Sólrún Guðmundsdóttir, f. 11. október 1867, d. 8. mars 1949 í Taber í Alberta í Kanada. Hún fór til Vesturheims frá Juliushaab 1888.
2. Jóhanna Guðmundsdóttir, f. 20. janúar 1870, d. 24. nóvember 1892. Hún fór til Vesturheims 1888 frá Jómsborg.
3. Ingveldur Guðmundsdóttir, f. 8. janúar 1872, d. 29. nóvember 1873 úr kverkabólgu.
4. Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 2. maí 1873, d. 9. nóvember 1891.
5. Ingveldur Guðmundsdóttir, f. 30. desember 1874, d. 11. júlí 1966. Hún fór til Vesturheims 1887 frá Godthaab.
6. Guðbjörg Guðmundsdóttir, f. 14. nóvember 1876. Hún fór til Vesturheims 1886 frá París.
7. Guðmundur Guðmundsson, tvíburi, f. 14. nóvember 1876, d. 17. nóvember 1876 „af almennri barnaveiki“.
8. María Guðmundsdóttir, tvíburi, f. 11. maí 1878. Hún fór til Vesturheims 1886 frá París, d. 15. september 1951 í Provo, Utah.
9. Katrín Guðmundsdóttir, tvíburi, f. 11. maí 1878, d. 14. nóvember 1880 úr „hálsveiki“.
10. Jónína Steinunn Guðmundsdóttir, f. 31. janúar 1880. Hún fór til Vesturheims frá París 1886.
Auk þessa átti Jóhanna barn með Sæmundi Ólafssyni frá Steinmóðsbæ u. Eyjafjöllum, f. 24. desember 1831, d. 20. mars 1863.
Barn þeirra:
11. Sæmundur Sæmundsson, f. 25. apríl 1863 í Stakkagerði. Hann fór til Vesturheims 1886 frá París, d. 12. janúar

Ingveldur var með foreldrum sínum í bernsku. Foreldrar hennar fluttust með þrem systrum hennar og hálfbróður þeirra til Utah 1886. Henni var komið í ,,dvöl‘‘ í Godthaab og þaðan fór hún 1887.
Hún giftist John James 1895. Þau fluttust til Winter Quarters í Carbon County skömmu síðar, þar sem maður hennar vann í námunum. Þau sneru síðar til Spanish Fork og bjuggu þar síðan. Ingveldur lést 1966.

I. Maður hennar, (1895), var John James Carrick námumaður í Winter Quarters í Utah og í Raymond, Taber í Alberta í Canada og Mapleton í Utah.
Börn þeirra:
1. Isabell, f. um 1895.
2. Helen, f. um 1897.
3. John, f. um 1898.
4. Tom, f. um 1900.
5. Hannah, f. um 1905.
6. Florence, f. um 1908.
7. Joe, f. um 1909.
8. Bill, f. um 1910.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Magnús Haraldsson.
  • Prestþjónustubækur.
  • The Icelanders of Utah. La Nora Allred.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.