Hólmfríður Traustadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hólmfríður Traustadóttir húsfreyja, verslunarmaður, dagmóðir fæddist 16. mars 1951.
Foreldrar hennar voru Trausti Eyjólfsson búfræðingur, hótelstjóri, æskulýðsfulltrúi, kennari, skólastjóri, f. 19. febrúar 1928, d. 30. ágúst 2020, og kona hans Jakobína Jónasdóttir frá Grænavatni í Mývatnssveit, húsfreyja, matráðskona, félagsmálafrömuður, f. 26. mars 1927, d. 29. nóvember 2016.

Börn Jakobínu og Trausta:
1. Jónas Traustason kennari, íþróttakennari, bifreiðakennari, f. 22. ágúst 1949. Fyrrum kona hans Hugrún Hlín Ingólfsdóttir. Kona hans Ha Thi Nuyens.
2. Hólmfríður Traustadóttir húsfreyja, verslunarmaður, dagmóðir, f. 16. mars 1951. Maður hennar Jón Karlsson.
3. Líney Traustadóttir húsfreyja, skólaliði, f. 9. október 1952. Maður hennar Jósef Rafnsson.
4. Hildur Traustadóttir húsfreyja í Köldukinn og á Hvanneyri, f. 16. febrúar 1955. Fyrrum maður hennar Þorgeir Jónsson. Maður hennar Ari Ingimundarson.
5. Kristbjörg Traustadóttir húsfreyja, skrúðgarðyrkjumaður, búfræðingur, landslagsarkitekt, hönnuður á Akranesi, f. 13. febrúar 1957. Barnsfaðir hennar Hörður Sigurðsson. Maður hennar Björgvin K. Björgvinsson.
6. Áslaug Traustadóttir húsfreyja, landslagsarkitekt, f. 31. desember 1958. Maður hennar Guðmundur J. Albertsson.
7. Hermann Helgi Traustason vinnuvélastjóri, bormaður, f. 1. maí 1962. Kona hans Margrét Jósefsdóttir.
8. Eysteinn Traustason tækniteiknari, innkaupastjóri, f. 28. júní 1966, ókvæntur.

Þau Jón giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa á Höfn í Hornafirði.

I. Maður Hólmfríðar er Jón Sigurgeir Karlsson frá Smyrlabjörgum í Suðursveit, sjómaður, vinnur við skipaafgreiðslu, f. 14. febrúar 1946. Foreldrar hans Karl Ágúst Bjarnason, f. 18. ágúst 1919, d. 2. apríl 2006, og Nanna Halldóra Jónsdóttir, f. 13. janúar 1923, d. 22. maí 2016.
Börn þeirra:
1. Kristín Jónsdóttir, f. 31. október 1969.
2. Halldóra Jónsdóttir, f. 11. febrúar 1969.
3. Jakobína Jónsdóttir, f. 12. febrúar 1976.
4. Jón Karl Jónsson, f. 14. október 1979.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.