Hjálmfríður Hjálmarsdóttir (Kastala)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Hjálmfríður Hjálmarsdóttir.

Hjálmfríður Hjálmarsdóttir húsfreyja frá Kastala fæddist 18. október 1859 og lést 6. mars 1922 í Spanish Fork í Utah.
Foreldrar hennar voru Hjálmar Filippusson sjávarbóndi í Norðurgarði f. 1810 á Skúmsstöðum í Stokkseyrarhreppi, d. 29. ágúst 1859 í Kastala og kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 21. apríl 1825, d. 2. júní 1890.

Faðir Hjálmfríðar lést, áður en hún fæddist.
Hún var með móður sinni í Kastala 1860-1863, með ekkjunni móður sinni í Jónshúsi 1864, á Fögruvöllum 1865, í Fagurlyst 1866, var sveitarómagi í Frydendal 1867-1868, niðursetningur þar 1869-1873, léttastúlka þar 1874-1876, vinnukona þar 1877-1878, í Sjólyst 1879, í Garðinum 1880, í Pétursborg 1881, í Fagurlyst 1883-1884, í Jónshúsi 1886-1891.
Hún fluttist til Vesturheims frá Jónshúsi 1891 og bjó í Spanish Fork í Utah.

I. Maður Hjálmfríðar, (11. nóvember 1893), var Sigurður Þorleifsson, Thor Leifson, húsasmíðameistari frá Hólshúsi, f. 20. september 1859, d. 8. mars 1922 í Utah. Hún var síðari kona hans.
Börn þeirra hér:
1. Juren Victor Leifson byggingameistari í Spanish Fork, f. þar 8. júní 1894, d. 11. september 1983. Kona hans Mary Bradford Leifson.
2. Johann Leifson, f. 24. september 1895, d. 29. september 1895.
3. Albert Theodore Leifson, f. 25. nóvember 1896, d. 11. desember 1896.
4. Mary Stanan Leifson, f. 2. desember 1897, d. 15. júní 1912.
5. Dorothy Gudrun Leifson Bearnson, f. 24. september 1900, d. 23. apríl 1984. Maður hennar Robert Ingersol Jakobsson Bearnson.
6. Leo Leifson, f. 3. maí 1903, d. 9. nóvember 1979. Kona hans Thursa Davis Leifson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.