Helga Breiðfjörð Helgadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Helga Breiðfjörð Helgadóttir húsfreyja, sjúkraliði í Svíþjóð fæddist 19. janúar 1960 í Eyjum.
Foreldrar hennar Elsa Sigurðardóttir frá Helli, húsfreyja, f. 4. nóvember 1922, d. 7. júní 1997, og Helgi Breiðfjörð Jónasson frá Húsavík við Skjálfanda, sjómaður, verkamaður, f. 5. september 1927, d. 11. júní 1991.

Börn Elsu og Helga:
1. Björk Breiðfjörð Helgadóttir húsfreyja, starfsmaður hjá Dvalarheimili aldraðra á Húsavík, f. 19. febrúar 1959 í Helli. Maður hennar Eiríkur Marteinsson, látinn.
2. Helga Breiðfjörð Helgadóttir húsfreyja, sjúkraliði í Svíþjóð, f. 19. jan. 1960 í Eyjum. Fyrrum maður hennar Kristján Þór Þórhallsson.
3. Viðar Breiðfjörð Helgason lyftaramaður, myndlistamaður, bæjarlistamaður í Eyjum, f. 31. maí 1962 á Húsavík. Ókv.
4. Elfa Breiðfjörð Helgadóttir húsfreyja, sjúkraliði á Akureyri, f. 19. júní 1964 á Húsavík. Fyrrum maður hennar Ásgeir Guðmundsson.
5. Oddfríður Breiðfjörð Helgadóttir húsfreyja, starfsmaður hjá Dvalarheimili aldraðra á Húsavík, f. 6. ágúst 1965 á Húsavík. Sambýlismaður hennar Ómar Egilsson.
Börn Elsu:
6. Sverrir Hákonarson sjómaður, matsveinn í Keflavík, f. 10. jan. 1941 í Helli, d. 30. júlí 2015. Kona hans Ásdís Kristinsdóttir.
7. Dóróthea Sigríður Róbertsdóttir húsfreyja, saumakona í Reykjavík, f. 1. okt. 1950 í Helli. Maður hennar Sverrir Jensson.

Þau Kristján Þór giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.

I. Fyrrum maður Helgu er Kristján Þór Þórhallsson, f. 24. apríl 1956, d. 24. mars 2017. Foreldrar hans Þórdís Jóhanna Kristjánsdóttir, f. 1. desember 1924, d. 30. september 2015, og Þórhallur Benediktsson Snædal, f. 13. júní 1923, d. 15. ágúst 1966.
Börn þeirra:
1. Örvar Þór Kristjánsson, f. 7. júní 1978.
2. Sigurður Helgi Kristjánsson, f. 4. september 1984.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.