Heiðar Stefánsson (Stóru-Heiði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Heiðar Stefánsson.

Heiðar Stefánsson sjómaður, verkamaður fæddist 12. ágúst 1963 á Ólafsfirði og lést 3. júlí 2020 á Spáni.
Foreldrar hans voru Stefán Einarsson frá Viðey við Vestmannabraut 30, verkamaður, Baadermaður, verkstjóri, f. 6. júlí 1931, d. 12. febrúar 1980, og kona hans Erna Fannberg Fannbergsdóttir frá Ólafsfirði, húsfreyja, ræstitæknir, f. 23. júní 1938.

Börn Ernu og Stefáns:
1. Valdís Stefánsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1955, d. 31. október 2018. Maður hennar Svavar Garðarsson.
2. Fannberg Einar Stefánsson sjómaður, vélstjóri, f. 30. júlí 1957 á Heiði, d. 6. janúar 2014. Kona hans Jólín Lilja Brynjólfsdóttir.
3. Ómar Stefánsson vélgæslumaður, f. 24. janúar 1961 í Kornhól við Strandveg 1. Kona hans Sigfríður Björg Ingadóttir.
4. Heiðar Stefánsson sjómaður, f. 12. ágúst 1963 á Ólafsfirði, d. 3. júlí 2020. Sambúðarkona hans Birna Sigrún Haraldsdóttir.
5. Erlingur Valur Stefánsson, f. 17. febrúar 1967. Fyrrum kona hans Hrefna Hrund Eronsdóttir.
6. Linda Mary Stefánsdóttir, f. 21. maí 1972. Maður hennar Magnús Elvar Viktorsson.

Heiðar var með móður sinni og síðan henni og föður sínum í Eyjum í æsku.
Hann var sjómaður og verkamaður.
Þau Birna Sigrún hófu sambúð, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Ísafirði, en skildu. Heiðar bjó síðast í Eyjum.
Hann lést 2020.

I. Fyrrum sambúðarkona Heiðars er Birna Sigrún Haraldsdóttir húsfreyja, f. 14. desember 1965. Foreldrar hennar Magnús Haraldur Magnússon, f. 8. apríl 1929, d. 7. febrúar 2023, og Helga Benediktsdóttir, f. 7. ágúst 1939.
Börn þeirra:
1. Fannberg Einar Heiðarsson, f. 22. nóvember 1986.
2. Helga Dís Heiðarsdóttir, f. 29. ágúst 1988. Maður hennar Kristinn Aron Hjartarson.
3. Magnús Daði Heiðarsson, f. 17.apríl 1990.
4. Erna Lind Heiðarsdóttir, f. 14. desember 2002. Maður hennar Ingvar Þór Albertsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.