Hans Wium

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hans Wium var settur sýslumaður Vestmannaeyja frá 1738 til 1740. Hans bjó á Oddsstöðum. Foreldrar hans voru Jens Wium sýslumaður og Ingibjörg Jónsdóttir.

Hann var tekinn í Skálholtsskóla árið 1733 og útskrifaðist sem stúdent árið 1736. Hans fór utan 1737 og var skráður í stúdentatölu í háskólanum í Kaupmannahöfn. Hans dvaldi aðeins tvö ár í Vestmannaeyjum. Fékk síðar konungsveitingu fyrir miðhluta Múlaþings, en var vikið frá embætti um tíma vegna Sunnefu-málsins svokallaða. Hans var sýknaður af hæstarétti og fékk embættið aftur.

Hann var tvígiftur. Fyrri kona hans var Guðrún Árnadóttir frá Arnheiðarstöðum og áttu þau fjögur börn. Síðari kona hans var Una Guðmundsdóttir frá Nesi í Loðmundarfirði og voru þau barnlaus.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.