Hákon Kristjánsson (Hákonarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hákon Kristjánsson sjómaður, verkamaður, húsvörður í Barnaskólanum fæddist 9. febrúar 1889 í Kirkjuvogi í Höfnum og lést 21. apríl 1970.
Foreldrar hans voru Kristján Jónsson bóndi, sjómaður, síðar múrari í Hafnarfirði, f. 6. maí 1860 í Oddasókn á Rangárvöllum, d. 26. september 1922, og kona hans Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 15. mars 1860 í Kirkjuvogssókn á Reykjanesi, d. 29. janúar 1924.

Hákon var með foreldrum sínum í Vesturbæ í Kirkjuvogssókn 1890 og 1901.
Hann var kvæntur sjómaður með Vilhelmínu konu sinni og Ásmundi bróður hennar á Merkinesi 1 þar 1910.
Þau Vilhelmína giftu sig 1910 og eignuðust þrjú börn, bjuggu á Nýja-Bjargi í Höfnum 1920.
Þau fluttust til Eyja 1922, voru leigjendur á Skjaldbreið 1923 og 1924, í Vallartúni 1925.
Þau frumbyggðu húsið að Kirkjuvegi 88 1926 og bjuggu þar síðan.
Guðrún Ásgrímsdóttir móðir Vilhelmínu fluttist til þeirra í Höfnum 1912 og var hjá þeim í Merkinesi og á Nýja-Bjargi, fluttist með þeim til Eyja og bjó hjá þeim til æviloka 1953.
Hjá þeim ólst upp Hilma Marinósdóttir húsfreyja, verslunarmaður, síðast á Selfossi, dóttir Guðrúnar Hákonardóttur, f. 30. desember 1932, d. 11. mars 2014.
Vilhelmína lést 1968 og Hákon 1970.

I. Kona Hákonar, (21. nóvember 1910), var Guðrún Vilhelmína Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 5. ágúst 1884 á Hvalnesi í Stöðvarfirði, d. 1. júní 1968.
Börn þeirra:
1. Guðrún Friðrika Ásmundína Hákonardóttir húsfreyja, f. 23. febrúar 1911 í Merkinesi í Höfnum, síðast í Reykjavík, d. 27. júlí 1984.
2. Guðmundur Kristján Hákonarson húsasmiður í Eyjum, f. 20. september 1915 í Merkinesi í Höfnum, d. 4. febrúar 2006.
3. Vilborg Hákonardóttir húsfreyja í Eyjum, f. 1. júní 1917 í Merkinesi í Höfnum, d. 3. apríl 1995. Maður hennar Ragnar Axel Helgason.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Víkingslækjarætt – niðjatal Guðríðar Eyjólfsdóttur og Bjarna Halldórssonar hreppstjóra. Pétur Zophoníasson og fleiri. Skuggsjá 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.