Guðlaug Sveinsdóttir (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðlaug Sveinsdóttir.

Guðlaug Sveinsdóttir húsfreyja á Eystri-Vesturhúsum, verkstjóri í Þorlákshöfn fæddist 16. maí 1925 á Siglufirði og lést 19. febrúar 2004 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Sveinn Norðmann Þorsteinsson kennari, skipstjóri, hafnarvörður á Siglufirði, f. 15. desember 1894 í Vík í Skagaf., d. 7. október 1971, og kona hans Anna Júlíana Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 29. júlí 1901 í Vík í Haganesvík, Skagaf., d. 30. desember 1985 í Reykjavík.

Þau Alexander bjuggu um skeið á Siglufirði. Þar fæddust 3 börn þeirra, tvær stúlkur og drengur, sem dó nýfæddur.
Þau fluttust til Eyja, keyptu neðri hæðina á Eystri-Vesturhúsum 1954, en bjuggu í Pálsborg meðan íbúðin var lagfærð.
Sveindís fæddist þeim 1958.
Þau bjuggu á Vesturhúsum eystri meðan vært var, en húsið þurfti að víkja vegna lengingar Ásavegar. Þau bjuggu á Brekastíg 5, þá í Vöruhúsinu, en síðast á Kirkjuvegi 64 (Rafnsholti).
Alexander veiktist hastarlega og var sjúklingur á Sjúkrahúsinu í nokkur ár. Hann lést 1972. Guðlaug fluttist til Þorlákshafnar, var þar verkstjóri hjá Meitlinum, fluttist síðar til Reykjavíkur.
Hún giftist Gunnlaugi 1987.
Gunnlaugur lést 1993 og Guðlaug 2004.

I. Maður Guðlaugar var Torfi Alexander Helgason sjómaður, f. 11. júlí 1918, d. 22. nóvember 1972.
Börn þeirra:
1. Guðrún Alexandersdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 3. febrúar 1946 á Siglufirði. Maður hennar Gísli Guðgeir Guðjónsson.
2. Anna Ragna Alexandersdóttir húsfreyja, framkvæmdastjóri í Hafnarfirði, f. 3. október 1952 á Siglufirði. Fyrrum maður hennar Jock Kim Tan. Maður hennar Lúðvík Haraldsson.
3. Drengur, sem lést nýfæddur.
4. Sveindís Norðmann Alexandersdóttir húsfreyja í Þorlákshöfn, f. 31. maí 1958 í Eyjum. Barnsfaðir hennar Garðar Guðnason. Maður hennar Guðmundur Óskarsson.

II. Maður Guðlaugar, (1987), var Gunnlaugur Þorsteinsson bóndi, bifvélavirki, húsvörður, f. 25. febrúar 1920 í Hellisgerði á Árskógsströnd, Eyjaf., d. 19. júní 1993 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Þorsteinn Þorvaldsson sjómaður, bóndi, f. 28. ágúst 1880 á Krossi á Árskógsströnd, d. 18. júlí 1964 í Reykjavík, og kona hans Anna Vigfúsína Þorvaldsdóttir húsfreyja, f. 11. júlí 1885 á Hellu á Árskógsströnd, d. 12. desember 1948 í Reykjavík.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.