Gunnar Valgeir Kristinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Gunnar Valgeir Kristinsson.

Gunnar Valgeir Kristinsson frá Heinabergi í A-Skaft., sjómaður, verkamaður fæddist 27. nóvember 1914 og lést 23. september 2001.
Foreldrar hans voru Kristinn Jónsson frá Ausu í Borgarfirði, bóndi á Þernunesi í Reyðarfirði og víðar, f. 8. febrúar 1877, d. 10. júlí 1962 og síðari kona hans Sigríður Gísladóttir frá Vagnstöðum (Borgarhöfn) í Suðursveit, f. 18. janúar 1885, d. 27. júlí 1964.
Fósturforeldrar Gunnars voru Eyjólfur Daníelsson bóndi á Heinabergi á Mýrum, f. 24. júlí 1844, d. 17. apríl 1933, og kona hans Málfríður Stefánsdóttir húsfreyja, f. 23. nóvember 1847, d. 18. apríl 1922.

Gunnar ólst upp á Heinabergi á Mýrum í A-Skaft., var þar 1930.
Þau Jórunn giftu sig 1947, eignuðust tvö börn, en fyrra barnið fæddist andvana.
Þau bjuggu á Höfðabrekku, en lengst á Byggðarenda, Brekastíg 15a, fluttust í Hraunbúðir 1994.
Gunnar Valgeir lést 2001 og Jórunn 2007.

I. Kona Gunnars Valgeirs, (8. nóvember 1947), var Jórunn Ingimundardóttir húsfreyja, f. 9. október 1923, d. 12. janúar 2007.
Börn þeirra:
1. Andvana drengur, f. 5. febrúar 1948 á Höfðabrekku.
2. Jóna Ósk Gunnarsdóttir húsfreyja, f. 6. júlí 1948 á Höfðabrekku. Maður hennar er Guðmundur Þ. Sigfússon.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.