Gunnar Jónas Björgvinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gunnar Jónas Björgvinsson frá Vallartúni við Austurveg 33, sjómaður fæddist 5. september 1950 og fórst með mb. Þráni NK 70 5. nóvember 1968.
Foreldrar hans voru Björgvin Guðmundur Þórðarson sjómaður, vélstjóri, kaupmaður, f. 11. maí 1924 á Fáskrúðsfirði, d. 26. maí 2001, og kona hans Ásta Guðfinna Finnbogadóttir frá Vallartúni, húsfreyja, f. 21. febrúar 1927, d. 11. janúar 2020.

Börn Ástu og Björgvins
1. Guðrún Þórdís Björgvinsdóttir, f. 16. febrúar 1949, d. 14. október 2004. Maður hennar Gísli Tómas Ívarsson.
2. Gunnar Jónas Björgvinsson, f. 5. september 1950, d. 5. nóvember 1968, fórst með Þráni VE.
3. Lilja Björgvinsdóttir sjúkraliði, f. 27. maí 1967. Maður hennar Þórhallur Óskarsson.
4. Gunnar Björgvinsson slökkviliðsmaður, starfsmaður Rauða krossins, f. 9. febrúar 1969. Fyrrum kona hans Margrét Gunnarsdóttir. Kona hans Birna Blöndal.

Gunnar var með foreldrum sínum, í Vallartúni og við Herjólfsgötu.
Hann varð sjómaður, var háseti á Þráni NK 70, er hann fórst 5. nóvember 1968.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.