Gunnar Eiríksson (Dvergasteini)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Gunnar frá Dvergasteini

Gunnar Eiríksson fæddist 9. september 1916 og lést 7. desember 1994. Hann var sonur hjónanna Eiríks Ögmundssonar og Júlíu Sigurðardóttur. Gunnar var næstelstur af sex systkinum, en móðir hans átti auk þeirra tvö börn úr fyrra sambandi. Fjölskyldan bjó að Dvergasteini og þar bjó Gunnar alla tíð fram að gosi. Eftir gos bjó hann í Reykjavík og var starfsmaður Hampiðjunnar. Síðustu ár ævi sinnar bjó hann á Hraunbúðum og undi vel.

Myndir