Gunnar Berg Viktorsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gunnar Berg Viktorsson er fæddur 27. júlí 1976. Hann er sonur Viktors Helgasonar og Stefaníu Þorsteinsdóttur, dóttur Þorsteins Sigurðssonar á Blátindi. Kona Gunnars er Dagný Skúladóttir og eiga þau einn son, Viktor Berg.

Gunnar Berg spilaði handbolta með ÍBV í öllum yngri flokkum og síðan með meistaraflokki ÍBV og einnig spilaði hann með meistaraflokki Fram. Hefur Gunnar Berg spilað með landsliði Íslands í handbolta en þó ekki náð að vinna sér fast sæti í landsliðinu.

Undanfarin ár hefur Gunnar Berg leikið með Kronau/Östringen í þýsku 1. deildinni en var þar áður hjá Wetzlar í Þýskalandi og Paris í Frakklandi. Í júní 2006 gerðu hann, og Dagný kona hans, sem einnig leikur handbolta, samning við danska handknattleiksfélagið Team Tvis Holstebro um að leika með því á næsta keppnistímabili.