Guðrún Erlendsdóttir (Giljum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Erlendsdóttir frá Giljum í Hvolhreppi, húsfreyja fæddist þar 4. júní 1900 og lést 6. janúar 1980.
Foreldrar hennar voru Erlendur Jónsson frá Arngeirsstöðum í Fljótshlíð, bóndi, trésmiður, f. 10. mars 1865, d. 9. október 1917, og kona hans Jóhanna Einarsdóttir frá Hallgeirsey í A.-Landeyjum, húsfreyja, f. 7. mars 1879, d. 26. mars 1959.

Börn Jóhönnu og Erlendar:
1. Ólafur Erlendsson sjómaður, kyndari, háseti, f. 25. mars 1897, fórst í Halaveðrinu 8. febrúar 1925.
2. Guðrún Erlendsdóttir húsfreyja í Norðurgarði í Mýrdal og í Sælundi í Vík þar, f. 4. júní 1900, d. 6. janúar 1980. Maður hennar Jón Guðmundsson.
3. Haraldur Elías Erlendsson sjómaður, f. 11. janúar 1902, d. 4. nóvember 1958.
4. Jón Erlendsson sjómaður, veitingamaður, f. 16. apríl 1903, d. 30. maí 1980.
5. Erlendur Erlendsson trésmiður, veitingamaður á Röðli, f. 6. september 1906, d. 14. desember 1958.
6. Leifur Kristinn Erlendsson þjónn, f. 12. júlí 1908, d. 20. október 1995. Kona hans Jóhanna Sighvatsdóttir.
7. Þuríður Einarbjörg Erlendsdóttir verslunarmaður í Reykjavík, f. 8. febrúar 1914, d. 13. september 1983. Maður hennar Börge, danskrar ættar.
8. Einar Sigurður Erlendsson leigubifreiðastjóri, síðast í Hafnarfirði, f. 22. október 1915, d. 26. október 1995. Kona hans Ingibjörg Þorsteinsdóttir.
9. Erlendur Jónsson Erlendsson sjómaður, bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 5. október 1917, d. 4. júní 1996. Kona hans Sigríður Hannesdóttir.

Guðrún var með foreldrum sínum, en faðir hennar lést, er hún var 17 ára. Hún flutti til Eyja með móður sinni og systkinum 1918.
Guðrún fór frá Eyjum að Hvoli í Mýrdal 1920, var þar vinnukona 1920-1922.
Þau Jón giftu sig 1923, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í Norðurgarði í Mýrdal 1923-1960, í Sælundi í Vík þar frá 1960.
Guðrún lést 1980 og Jón 1983.

I. Maður Guðrúnar, (19. október 1923), var Jón Guðmundsson frá Ketilsstöðum í Mýrdal, bóndi, f. þar 19. ágúst 1899, d. 15. apríl 1983. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson bóndi á Brekkum, f. 7. september 1867, d. 10. mars 1964, og kona hans Rannveig Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 2. desember 1871 á Ketilsstöðum, d. 30. júlí 1956.
Börn þeirra:
1. Erlendur Jóhann Jónsson bifreiða- og blikksmiður í Reykjavík, f. 5. maí 1924, d. 26. mars 2008. Kona hans Sesselja Þórðardóttir.
2. Ólafía Jónsdóttir Vosk, húsfreyja, vann ýmis þjónustustörf, síðast í Garðabæ, f. 22. júní 1925, d. 15. desember 2017. Fyrrum menn hennar Hilmar Friðþórsson og Björn Friðbjörnsson. Maður hennar Theodore Vosk frá New York.
3. Daníel Sigurður Jónsson bifreiðasmiður í Reykjavík, f. 20. febrúar 1935, d. 27. desember 2016. Kona hans Anna Sigríður Þorbergsdóttir.
4. Valdimar Karl Jónsson, f. 29. febrúar 1940. Kona hans Auður Pedersen.
5. Rannveig Jónsdóttir húsfreyja, f. 20. júlí 1943. Fyrrum maður hennar Elías Andri Karlsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.