Guðríður Jónsdóttir (Nöjsomhed)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðríður Jónsdóttir vinnukona í Nöjsomhed, síðar húsfreyja á Fljótshólum í Flóa, fæddist 29. janúar 1835 í Gaulverjabæjarsókn í Flóa og lést 25. apríl 1916.
Foreldrar hennar voru Jón „ríki“ Jónsson bóndi og hreppstjóri á Vestri-Loftsstöðum í Flóa, f. 1800, d. 28. ágúst 1863, og kona hans Sigríður „elsta“ Jónsdóttir húsfreyja, f. 1801, d. 17. ágúst 1881.

Guðríður var með foreldrum sínum til ársins 1862, er hún fluttist að Nöjsomhed, var þar 1862-1864. Hún fluttist í Gaulverjabæ 1864 með Jónínu Guðríði dóttur sína.
Guðríður var húsfreyja á Fljótshólum í Flóa 1870 og enn 1910. Hún lést 1916.

I. Barnsfaðir hennar að tveim börnum var Davíð Ólafsson, „Davíð, sem datt“ frá Kirkjubæ, f. 12. apríl 1836, d. 10. mars 1875.
Börn þeirra voru:
1. Jónína Guðríður Davíðsdóttir, f. 30. september 1863 í Nöjsomhed.
2. Sigríður Davíðsdóttir ljósmóðir á Fljótshólum og á Hákonarstöðum á Jökuldal, N-Múl., f. 30. október 1864 á Fljótsólum, d. 14. september 1950 í Hafnarfirði. Fyrrum maður hennar Jón Bjarnason. Maður hennar Guðmundur Guðjónsson.

II. Maður Guðríðar, (1865), var Halldór Steindórsson bóndi á Fljótshólum, f. 27. maí 1837, d. 9. júní 1895.
Börn þeirra hér:
3. Bjarni Halldórsson bóndi á Fljótshólum, f. 28. ágúst, f. 1867, d. 2. júní 1915. Kona hans Jóhanna Sæmundsdóttir.
4. Þuríður Halldórsdóttir húsfreyja á Fljótshólum, f. 2. janúar 1869, d. 31. desember 1946, ógift.
5. Jón Halldórsson bóndi á Fljótshólum, f. 10. febrúar 1874, d. 21. mars 1920. Kona hans Jórunn Pálsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Ljósmæður á Íslandi 1-2. Ritstjóri Björg Einarsdóttir. Ljósmæðrafélag Íslands 1984.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.