Guðný Sigurðardóttir (Eystri-Garðsauka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðný Sigurðardóttir frá Eystri-Garðsauka í Hvolhreppi, Rang., húsfreyja fæddist þar 15. febrúar 1866 og lést 6. september 1948.
Foreldrar hennar voru Sigurður Jónsson bóndi, f. 10. október 1832, d. 10. júlí 1885, og kona hans Katrín Ísleifsdóttir húsfreyja, f. 16. apríl 1832, d. 14. nóvember 1904.

Guðný var með foreldrum sínum í Eystri-Garðsauka 1870, á Brúnum u. V.-Eyjafjöllum 1880, vinnukona þar 1890.
Þau Ísleifur giftu sig 1893, eignuðust ellefu börn og fóstruðu Aðalheiði barn Önnu dóttur sinnar.
Þau bjuggu í Neðri-Dal í V.-Eyjafjallahreppi 1901, í Seljalandsseli þar 1910. Þau bjuggu á Óseyrarnesi við Ölfusá 1920.
Þau fluttu til Eyja 1924, bjuggu á Brekastíg 24, fluttu til lands 1930. Þau bjuggu síðast í Njarðvíkum.
Ísleifur lést 1941 og Guðný 1948.

I. Maður Guðnýjar, (22. maí 1893), var Ísleifur Bergsteinsson frá Neðri-Dal u. V.-Eyjafjöllum, bóndi, ferjumaður, verkamaður, f. 27. júní 1869, d. 16. mars 1941.
Börn þeirra:
1. Katrín Ísleifsdóttir húsfreyja á Einlandi í Grindavík 1930, f. 17. febrúar 1894, d. 9. mars 1972.
2. Bergsveinn Ísleifsson bóndi í Götu í Árn., Móum í Innri-Njarðvík, f. 16. júní 1895, d. 20. mars 1951.
3. Guðmundur Ísleifsson trésmiður í Eyjum, bóndi í Krýsuvík, trésmiður í Reykjavík, f. 18. september 1896, d. 11. janúar 1962.
4. Sigurleif Ísleifsdóttir, f. 8. apríl 1898, d. 8. apríl 1898.
5. Sigurður Ísleifsson skipstjóri í Hafnarfirði, f. 6. ágúst 1899, d. 15. nóvember 1964.
6. Markús Ísleifsson fósturbarn Vigfúsar föðurbróður síns, trésmiður í Reykjavík, f. 4. febrúar 1901, d. 13. desember 1984.
7. Anna Ísleifsdóttir húsfreyja, f. 10. mars 1902, d. 17. september 1940.
8. Þorsteinn Ísleifsson sjómaður í Reykjavík, f. 8. desember 1903, d. 28. janúar 1936.
9. Guðrún Ísleifsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 17. desember 1904, d. 18. janúar 1999.
10. Guðleifur Ísleifsson vélamaður, skipstjóri, vitavörður á Sauðanesi við Siglufjörð, f. 10. október 1906, d. 20. mars 1967.
11. Aðalheiður Ísleifsdóttir, f. 4. ágúst 1910, d. 31. janúar 1930.
12. Aðalheiður Ísleifs Hafliðadóttir dóttir Önnu Ísleifsdóttur og fósturdóttir Guðnýjar og Ísleifs; Aðalheiður var f. 28. janúar 1929 á Brekastíg 24 í Eyjum, síðast í Bólstaðarhlíð 46 í Reykjavík, d. 24. september 2018.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.