Guðlaugur Ágústsson (Brekkuborg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðlaugur Ágústsson.

Guðlaugur Ágústsson frá Brekkuborg í Breiðdal, vélstjóri, verkstjóri fæddist þar 2. apríl 1919 og lést 24. júlí 2004 á dvalarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði.
Foreldrar hans voru Ágúst Pálsson sjómaður, bóndi, verkamaður, f. 11. ágúst 1886, d. 5. apríl 1955, og kona hans Sigurlaug Stefanía Einarsdóttir húsfreyja, f. 25. september 1896, d. 27. júlí 1970.

Guðlaugur var með foreldrum sínum.
Hann lauk Vélskólanum í Eyjum.
Hann var sjómaður frá unga aldri, vélstjóri.
Guðlaugur hætti sjómennsku 1964 og hóf störf hjá Ísfélaginu, hafði umsjón með flökunarvélum og var verkstjóri og annaðist gæðaeftirlit.
Hann flutti til Keflavíkur 1986, dvaldi þar í 10 ár, og vann hjá Hraðfrystistöð Keflavíkur við umsjón flökunarvéla.
Þau Svanhild bjuggu síðar við Bauganes í Reykjavík.
Þau Svanhild giftu sig 1945, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Brekastíg 25.
Svanhild lést 2001 og Guðlaugur 2004.

I. Kona Guðlaugs, (31. desember 1945), var Svanhild Jensen Ágústsson frá Sandey í Færeyjum, húsfreyja, f. 22. júní 1926, d. 21. júlí 2001.
Börn þeirra:
1. Sigurlaug Ágústa Guðlaugsdóttir húsfreyja, f. 22. september 1945, d. 17. júní 2019. Maður hennar Aðalsteinn Aðalsteinsson.
2. Ingiborg Guðlaugsdóttir, f. 4. ágúst 1947.
3. Bjartmar Anton Guðlaugsson, f. 13. júní 1952. Kona hans María Helena Haraldsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.