Guðlaug Einarsdóttir (Berjanesi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaug Einarsdóttir frá Fljótskróki í Meðallandi, V.-Skaft., húsfreyja fæddist þar 20. maí 1901 og lést 1. apríl 1924 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Einar Einarsson frá Hátúnum í Landbroti, V.-Skaft., bóndi, síðar í dvöl í Berjanesi, f. 18. mars 1862, d. 19. apríl 1942 í Reykjavík, og kona hans Þuríður Elíasdóttir frá Syðri-Steinsmýri í Meðallandi, síðar í dvöl í Berjanesi, húsfreyja, f. 3. september 1870, d. 10. febrúar 1948 í Reykjavík.

Börn Þuríðar og Einars:
1. Elías Einarsson bóndi á Norður-Fossi í Mýrdal, f. 9. júní 1893, d. 23. janúar 1922. Kona hans Sigríður Vigfúsdóttir.
2. Gyðríður Einarsdóttir vinnukona, húsfreyja, f. 29. maí 1894, d. 27. september 1962. Maður hennar Páll Guðbrandsson.
3. Jón Einarsson verkamaður, smiður, f. 13. júní 1895, d. 27. nóvember 1989. Kona hans Ólöf Friðfinnsdóttir.
4. Þórarinn Einarsson, (Tóti í Berjanesi), sjómaður, verkamaður, f. 18. mars 1897, d. 28. september 1983.
5. Guðlaug Einarsdóttir húsfreyja, f. 20. maí 1901, d. 1. apríl 1924. Maður hennar, skildu, Árni Gíslason.
6. Halla Einarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2. febrúar 1903, d. 11. janúar 1998. Barnsfaðir hennar Þórður Ingiberg Björnsson. Maður hennar Þorleifur Sigurbrandsson.

Guðlaug var með foreldrum sínum í Fljótskróki til 1902, á Kárastöðum 1902-1905, á Fossi í Mýrdal 1905-1919. Þá fór hún u. Eyjafjöll, var vinnukona þar í Björnskoti 1920.
Þau Árni giftu sig 1922, eignuðust barn á Þorvaldseyri u. Eyjafjöllum 1922. Þau fluttu til Eyja og skildu.
Guðlaug lést 1924.

I. Maður Guðlaugar, (7. maí 1922 í Eyjum, skildu), var Árni Gíslason frá Þorvaldseyri u. Eyjafjöllum, verkamaður, f. 17. maí 1894, d. 17. júlí 1970. Foreldrar hans Gísli Gíslason bóndi, f. 16. júlí 1854 í Holti í V.-Skaft., d. 17. október 1921, og bústýra hans Guðrún Björnsdóttir, f. 14. nóvember 1862 á Rauðafelli u. Eyjafjöllum, d. 31. maí 1922.
Barn þeirra:
1. Guðmundur Gísli Árnason, f. 27. nóvember 1922 í Berjanesi, d. 23. júlí 1924.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.