Guðjón H. Guðnason (tollvörður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðjón Hafsteinn Guðnason.

Guðjón Hafsteinn Guðnason frá Óspaksstöðum í Hrútafirði, tollvörður fæddist 8. desember 1896 og lést 3. júlí 1980.
Foreldrar hans voru Guðni Einarsson bóndi og kennari, f. 2. september 1858, d. 10. október 1916, og kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. nóvember 1859, d. 30. mnaí 1906.

Guðjón var í Gagnfræðaskólanum Flensborg í Hafnarfirði 1915-1917, lauk prófi í Verslunarskóla Íslands 1921.
Hann vann við vegavinnu og námugröft á Tjörnesi á yngri árum.
Guðjón var kennari í Laxárdalshreppi í Dalas. 1921-1922, og 1923-1925, heimiliskennari í Hörðudalshreppi , Dalas. 1922-1923, verslunarmaður hjá Kaupfélagi V.-Hún. á Hvammstanga 1925-1935.
Hann var tollvörður í Eyjum 1936-1939, í Rvk frá 1939-1968.
Þau Klara giftu sig 1926, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Borg við Heimagötu 3 1938.
Guðjón lést 1980 og Klara 1992.

I. Kona Guðjóns, (16. september 1926), var Laufey KLara Eggertsdóttir húsfreyja, f. 8. mars 1902, d. 21. apríl 1992.
Börn þeirra:
1. Guðrún Guðjónsdóttir, húsfreyja, f. 19. maí 1928, d. 12. apríl 2019. Maður hennar Gunnar Gissurarson.
2. Heiða Guðjónsdóttir, húsfreyja, f. 2. október 1935, d. 16. janúar 2018. Maður hennar Guðmundur Jóhann Clausen.
3. Guðný Kristín Guðjónsdóttir, húsfreyja, f. 20. febrúar 1938 á Borg við Heimagötu 3. Maður hennar Ástþór Valgeirsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Morgunblaðið.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.