Grétar Þór Sævaldsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Grétar Þór Sævaldsson sjómaður fæddist 24. júlí 1960.
Foreldrar hans voru Sævald Pálsson frá Þingholti, skipstjóri, f. 27. desember 1936, d. 26. ágúst 2023, og kona hans Svava Guðríður Friðgeirsdóttir frá Efra-Hvoli, húsfreyja, f. 4. júlí 1940, d. 9. janúar 2017.

Börn Svövu og Sævalds:
1. Elías Geir Sævaldsson sjómaður, f. 30. janúar 1958. Kona hans er Anna Gerða Bjarnadóttir.
2. Sigurgeir Sævaldsson sjómaður, f. 30. júlí 1959. Kona hans er Lóa Hrund Sigurbjörnsdóttir.
3. Grétar Þór Sævaldsson sjómaður, f. 24. júlí 1960. Kona hans er Kristný S. Tryggvadóttir.
4. Ásdís Sævaldsdóttir húsfreyja, fjármálastjóri, f. 5. ágúst 1962. Maður hennar er Hallgrímur Tryggvason.
5. Erna Sævaldsdóttir húsfreyja, f. 8. apríl 1967. Maður hennar er Gylfi Sigurjónsson.

Þau Kristný giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Heiðartún 1.

I. Kona Grétars er Kristný Sigurbjörg Tryggvadóttir húsfreyja, f. 20. mars 1966.
Börn þeirra:
1. Svava Kristín Grétarsdóttir, f. 22. mars 1990.
2. Kristgeir Orri Grétarsson, f. 15. október 1992. Barnsmóðir hans Eva Aðalsteinsdóttir.
3. Ágúst Emil Grétarsson, f. 30. júní 1998.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.